FRÉTT MENNTUN 08. JÚNÍ 2023

Hagstofan birtir nú ítarlegri upplýsingar en áður um háskólamenntun starfsmanna við kennslu í grunnskólum, þar sem háskólamenntun er greind eftir prófgráðum. Árið 2022 voru 63,2% starfsfólks við kennslu með grunnpróf á háskólastigi og 31,4% með meistaragráðu eða meiri menntun.

Hlutfall starfsfólks sem hefur lokið meistaragráðu var hæst á meðal skólastjóra, 60,8%, 51,4% á meðal aðstoðarskólastjóra og tæplega 30% á meðal deildarstjóra og kennara. Til að fá leyfisbréf sem kennari til starfa í grunnskóla þarf núna að hafa lokið meistaragráðu en eldri leyfisbréf gilda áfram.

Sjötti hver kennari var án kennsluréttinda haustið 2022
Frá árinu 2012 hefur kennurum án kennsluréttinda fjölgað ár frá ári og voru 16,9% starfsfólks við kennslu haustið 2022. Þá voru 974 af 5.778 starfsmönnum við kennslu án kennsluréttinda og hafði réttindalausum kennurum fjölgað um 46 frá hausti 2021.

Hæst var hlutfall starfsfólks við kennslu án réttinda á Vestfjörðum, 36,2%, 34,3% á Austurlandi og 30,0% á Suðurnesjum. Lægst var hlutfall starfsfólks við kennslu án kennsluréttinda á Norðurlandi eystra þar sem 11,3% starfsmanna við kennslu voru án réttinda.

Engin breyting á fjölda karla við kennslu síðustu 25 ár en konum fjölgar
Frá hausti 1998 hefur starfsfólki við kennslu fjölgað úr rúmlega 4.000 í tæplega 5.800 haustið 2022. Karlar við kennslu voru 1.052 haustið 1998 en voru 1.053 haustið 2022. Á sama tíma fjölgaði konum úr tæplega 3.000 í rúmlega 4.700. Vert er þó að geta þess að körlum við kennslu hefur fjölgað ár frá ári frá 2016 ef eingöngu er litið á fjöldatölur og fjölgaði um rúmlega 30 frá 2021 til 2022. Alls voru 9.408 starfandi í grunnskólum haustið 2022 og hafði fjölgað um 120 frá fyrra ári.

Aukið brottfall starfsfólks við kennslu
Af þeim rúmlega 5.700 starfsmönnum við kennslu haustið 2021 voru 785 ekki við kennslu haustið 2022, eða 13,8%. Þetta er hæsta brottfall samkvæmt tölum Hagstofunnar síðan árið 2013, þegar það var 14,1%. Þegar eingöngu er litið á kennara með kennsluréttindi voru 11,8% þeirra sem voru við kennslu haustið 2021 ekki við kennslu haustið 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.