FRÉTT MENNTUN 18. JANÚAR 2005

Skólamáladeild Hagstofu Íslands hefur tekið saman tölur um fjölda skráðra nemenda í framhaldsskólum og háskólum haustið 2004 og gefið út í ritröðinni Hagtíðindi.

Tæplega 40.500 skráningar í framhaldsskóla og háskóla
Haustið 2004 eru skráðir nemendur á framhaldsskóla- og háskólastigi fleiri en nokkru sinni fyrr eða 40.497. Í framhaldsskóla eru skráðir  24.220 nemendur og 16.277 nemendur í háskóla. Skráðum nemendum í námi á háskólastigi hefur fjölgað um 92,0% frá haustinu 1997 en nemendum á framhaldsskólastigi hefur fjölgað um 19,8% á sama tímabili. Konur eru umtalsvert fjölmennari en karlar eða 23.218 (57,3%) en karlar eru 17.279 (42,7%). Nemendum í fjarnámi fjölgar jafnt og þétt og eru þeir nú talsvert fjölmennari en nemendur í kvöldskólum. Haustið 2004 stunda rúmlega 80% nemenda nám í dagskóla, rúm 12% nemenda fjarnám og rúm 7% eru í kvöldskóla.

Í ofangreindum Hagtíðindum má finna yfirlitstölur um heildarfjölda skráðra nemenda í framhalds- og háskólum allt frá árinu 1997 til 2004. Einnig sundurliðaðar tölur eftir skólastigi, kennsluformi og tegundum skóla fyrir sama tímabil. Þá er að finna í ritinu sundurliðaðar upplýsingar um fjölda skráðra nemenda haustið 2004 eftir einstaka skólum, námsbraut, kyni og kennsluformi. Loks má finna upplýsingar um fjölda nemenda eftir námsstöðu þeirra. 

Skráðir nemendur í framhalds- og háskólum haustið 2004 - útgáfur  

Talnaefni:
Framhaldsskólar
Háskólar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.