FRÉTT MENNTUN 23. APRÍL 2018

Þátttaka í símenntun hefur farið minnkandi undanfarin tvö ár eftir aukningu á milli áranna 2014 og 2015. Tæplega 23% landsmanna á aldrinum 25-64 ára sóttu sér fræðslu, annað hvort í skóla eða aðra fræðslu með leiðbeinanda árið 2017, alls 39.600 manns. Þótt fækkun milli ára sé eingöngu 1,4 prósentustig, hefur hlutfall þeirra sem sóttu símenntun ekki verið lægra síðan tölur um símenntun voru fyrst birtar árið 2003, þegar það var 22,2%. Í aldurshópnum 16-74 ára er sömu sögu að segja; fækkun þeirra sem stunduðu símenntun er tæpt prósentustig og hefur þátttaka ekki verið minni síðan árið 2003. Þátttaka var minni í öllum tegundum símenntunar, svo sem námskeiðum, annarri fræðslu með leiðbeinanda utan skóla (s.s. ráðstefnum) og fræðslu innan skóla. Mest var fækkunin meðal háskólamenntaðra karla, um 4 prósentustig í hvorum aldurshópi.

Þátttaka í símenntun mest meðal háskólamenntaðra
Þátttaka í símenntun var mest meðal háskólamenntaðra en rúm 30% háskólamenntaðra landsmanna á aldrinum 25-64 ára sóttu sér fræðslu árið 2017. Hlutfallið var lægra meðal þeirra sem lokið höfðu starfs- og framhaldsmenntun, um 21%, og lægst meðal þeirra sem eingöngu höfðu lokið grunnmenntun, rúm 12%.

Þátttaka í símenntun var mest í aldurshópnum 16-24 ára, 61,2%, sem skýrist af því að stór hluti aldurshópsins sækir framhaldsskóla- og háskólanám. Minnst þátttaka var hins vegar í aldurshópnum 55-74 ára, 11,4%. Konur voru um 54% allra sem sóttu sér fræðslu á aldrinum 16-74 ára, 35.900 talsins, en karlar voru 30.400.

 

Flestir sóttu fræðslu utan skóla
Alls sóttu 27.500 manns, á aldrinum 25-64 ára, sér fræðslu eða endurmenntun utan skóla árið 2017. Þá sóttu 15.400 manns námskeið og 13.300 fengu aðra fræðslu með leiðbeinanda, sóttu t.d. ráðstefnu. Um 17.100 manns á þessum aldri voru í skóla.

Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í símenntun voru starfandi á vinnumarkaði, 34.900 manns. Í þessum hópi var þátttaka í símenntun utan skóla mun meiri en innan, tæp 18% sóttu símenntun utan skóla á móti rúmlega 7% sem sóttu sér símenntun innan skóla. Þessu er öfugt farið hjá þeim sem voru atvinnulausir og þeim sem voru utan vinnumarkaðar, þar sem fleiri kusu að sækja sér fræðslu innan skóla en utan. Um 18% atvinnulausra og þeirra sem voru utan vinnumarkaðar tóku þátt í símenntun innan skóla en þátttaka þessara hópa í símenntun utan skóla var á bilinu 7-10%.


Um gögnin
Tölurnar eru byggðar á niðurstöðum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Vinnumarkaðsrannsóknin byggist á alþjóðlegum stöðlum og skilgreiningum. Í úrtökuramma rannsóknarinnar eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar 16–74 ára sem hafa lögheimili á Íslandi. Í úrtak ársins 2017 völdust af handahófi 15.734 manns. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 15.313 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 10.488 einstaklingum sem jafngildir 68,5% svarhlutfalli. Allar niðurstöður hafa verið vegnar eftir kyni og aldri.

Símenntun er skilgreind sem öll menntun sem einstaklingur sækir, hvort sem er formlegt nám í skóla eða menntun utan skóla, s.s. á námskeiði, fyrirlestri eða á ráðstefnu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang menntamal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.