FRÉTT MENNTUN 28. ÁGÚST 2015

Haustið 2014 voru 108 konur starfandi skólastjórar í grunnskólum á Íslandi en voru 68 haustið 1998. Á sama tíma fækkaði körlum í skólastjórastétt um 62 og voru 63 haustið 2014.

Haustið 2014 starfaði 901 karl við kennslu í grunnskólum landsins, 18,7% starfsfólks við kennslu. Körlum hefur farið hægt fækkandi meðal kennara frá 1998, þegar karlar voru 26,0% kennara. Á sama tíma hefur konum við kennslu fjölgað og voru 3.911 haustið 2014.

 

Meðalaldur kennara í grunnskólum heldur áfram að hækka
Meðalaldur starfsfólks við kennslu í grunnskólum hefur farið hækkandi frá árinu 2000. Haustið 2000 var meðalaldur starfsfólks við kennslu 42,2 ár en var 46,4 ár haustið 2014. Á þessu tímabili hefur meðalaldur kvenkennara hækkað meira eða úr 41,8 árum í 46,5 ár. Meðalaldur karlkennara hefur hækkað úr 43,6 árum í 46,0 ár. Meðalaldur kennara án réttinda er töluvert lægri en réttindakennara og hefur svo verið á öllu tímabilinu. Haustið 2014 var meðalaldur kennara með kennsluréttindi 46,7 ár en meðalaldur kennara án kennsluréttinda 39,1 ár.

Nemendum í grunnskólum fjölgar annað árið í röð
Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 43.136 haustið 2014. Nemendum fjölgaði um 402 (0,9%) frá fyrra ári. Um fjölgun er að ræða annað árið í röð eftir samfellda fækkun frá árinu 2003, þegar grunnskólanemendur voru 44.809 talsins. Haustið 2014 stunduðu auk þess 114 börn nám í 5 ára bekk.

Grunnskólanemendum með erlent móðurmál fjölgar áfram
Nemendum sem skráðir voru með erlent tungumál að móðurmáli hefur fjölgað ár frá ári frá því að Hagstofan hóf að safna inn þeim upplýsingum. Haustið 2014 höfðu 3.275 grunnskólanemendur erlent tungumál að móðurmáli, eða 7,6%, sem er fjölgun um 1,1 prósentustig frá fyrra ári. Algengasta erlenda móðurmál nemenda var pólska (1.114 nemendur), þá filippseysk mál (306 nemendur) og enska (229 nemendur). Undanfarin ár hafa rúmlega 60% nemenda með erlent tungumál að móðurmáli búið á höfuðborgarsvæðinu og tæplega 40% búið utan þess.


 

Nemendum í einkareknum grunnskólum fjölgar
Alls störfuðu 167 grunnskólar á landinu haustið 2014, sem er fækkun um tvo skóla frá fyrra ári. Grunnskólarnir á Hallormsstað, Borðeyri og í Svalbarðshreppi voru lagðir niður en einn nýr skóli tók til starfa haustið 2014, Reykjavík International School. Grunnskólum fer fækkandi vegna sameiningar og hefur fækkað um 29 skóla frá árinu 1998.

Einkaskólarnir voru 11 talsins með 1.134 nemendur haustið 2014 og eru nemendur í 5 ára bekk undanskildir. Ekki hafa áður verið fleiri nemendur í einkareknum grunnskólum á Íslandi frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands. Í sérskólum, sem voru þrír talsins, stunduðu 155 nemendur nám.

Fjölmennustu grunnskólar landsins voru í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur: Hraunvallaskóli (826 nemendur), Varmárskóli (733) og Lágafellsskóli (706). Fámennasti grunnskólinn var Grunnskólinn í Hofgarði þar sem 5 nemendur stunduðu nám haustið 2014.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.