FRÉTT MENNING 08. JÚLÍ 2022

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 26. september 2023 frá upprunalegri útgáfu. Tölur um safngesti eftir landshlutum voru leiðréttar.

Gestum safna, setra, sýninga og skyldrar starfsemi fækkaði um 45% á milli áranna 2019 og 2020. Mest fækkaði gestum sögusafna, eða um 54%, og þá listasafna, um 47%. Gestum náttúrusafna fækkaði jafnframt um 29% og gestum dýragarða um 21%. Sé horft til landshluta fækkaði safnagestum mest á Austurlandi, um 83%, og á Vesturlandi, um 73%. Gestum fækkaði í öllum landshlutum.

Erlendum safnagestum fækkaði um 84,9% á milli 2019 og 2020 en innlendum um 21,4%. Árið 2020 voru innlendir safnagestir 76,7% af heildarfjölda gesta en erlendir 23,3% og var það í fyrsta sinn síðan 2013 sem innlendir safnagestir voru í meirihluta en á milli 2015-2019 var hlutfall innlendra gesta á bilinu 33-49%. Hlutfallslega fækkaði erlendum gestum mest á listasöfnum, eða um 92,9% og minnst á náttúrusöfnum, um 65,9%. Innlendum gestum fækkaði á öllum tegundum safna nema náttúrusöfnum.

Reglulegum sýningardögum safna yfir sumartímann fækkaði jafnframt á milli ára. Þannig fækkaði þeim söfnum sem höfðu opið 6-7 daga vikunnar að sumri til úr 104 í 98 á meðan að söfnum án reglulegra sýningardaga að sumri til fjölgaði úr 3 í 9.

Um gögnin
Upplýsingar um viðurkennd söfn koma úr skýrslum sem viðurkennd söfn skila safnaráði árlega. Upplýsingum um önnur söfn safnar Hagstofan frá söfnunum sjálfum í árlegri gagnasöfnun.

Alls skiluðu 123 söfn, setur, sýningar, garðar og skyld starfsemi inn upplýsingum um starfsemi sína árið 2020 og hafa þau ekki verið færri síðan 2002. Af þeim skiluðu 112 upplýsingum um fjölda gesta en 115 skiluðu sömu upplýsingum árið áður. Rétt er að nefna að listi Hagstofu Íslands yfir starfandi söfn, setur, sýningar, garða og skylda starfsemi er ekki tæmandi en hann er uppfærður árlega eftir þeim upplýsingum sem aðgengilegar eru í hvert skipti.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1281 , netfang Anton.Karlsson@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.