FRÉTT MENNING 18. JANÚAR 2007

Talsverðar breytingar hafa orðið á trúfélagaaðild landsmanna á undanförnum áratugum. Í fyrsta lagi hefur skráðum trúfélögum fjölgað allmikið (úr 14 árið 1991 í 27 árið 2006). Í öðru lagi hefur þeim sem skráðir eru í Þjóðkirkjuna fækkað jafnt og þétt á umræddu tímabili (í hlutfalli við mannfjölda). Árið 1991 voru 92,2% landsmanna í Þjóðkirkjunni samanborið við 82,1% árið 2006.

Flest trúfélög utan Þjóðkirkjunnar eru smá og einungis sex telja fleiri en 1.000 meðlimi. Sóknarbörnum í fríkirkjunum þremur (Fríkirkjunni í Reykjavík, Óháða söfnuðinum og Fríkirkjunni í Hafnarfirði) hefur fjölgað nokkuð á undanförnum árum og er hlutfall þeirra af heildarmannfjölda nú 4,7% samanborið við 3,1% árið 1991 (mynd 1).

Af einstökum trúfélögum hefur meðlimum fjölgað langmest í Kaþólsku kirkjunni; 2,4% landsmanna eru nú í Kaþólsku kirkjunni samanborið við 1% árið 1991 (mynd 2). Önnur trúfélög með fleiri en 1.000 meðlimi eru Hvítasunnukirkjan og Ásatrúarfélagið. Meðlimum í Hvítasunnukirkjunni hefur fjölgað fremur lítið undanfarin ár (úr 0,4% landsmanna 1991 í 0,6% 2006). Í Ásatrúarfélaginu hefur meðlimum aftur á móti fjölgað mjög ört; félagið taldi rétt rúmlega 100 meðlimi 1991 en í dag eru 0,3% landsmanna skráðir í Ásatrúarfélagið. Þá hefur þeim sem hafa skráð sig utan trúfélaga fjölgað úr 1,4% árið 1991 í 2,6% 2006.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.