FRÉTT MANNFJÖLDI 14. OKTÓBER 2008

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru 48 einstaklingar ættleiddir á Íslandi árið 2007. Þetta er talsvert lægri tala en undanfarin ár en árið 2005 voru ættleiðingar 75 og 76 árið 2006. Árið 2007 voru stjúpættleiðingar 27 en  frumættleiðingar voru 21. Með hugtakinu stjúpættleiðing er átt við ættleiðingu á barni (eða kjörbarni) maka umsækjanda. Með hugtakinu frumættleiðing er um að ræða ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda.

Frumættleiðingum frá útlöndum hefur fækkað umtalsvert frá árinu 2005. Það ár voru frumættleiðingar frá útlöndum fleiri en nokkurt annað ár eða 41 talsins. 35 þessara barna komu frá Kína. Árið 2006 voru frumættleiðingar frá útlöndum 19 og 17 árið 2007. Bæði árin voru börn frá Kína 13 talsins. Á tímabilinu 1996–2007 hafa flest erlend frumættleidd börn komið frá Kína, eða 105 stúlkur og þrír drengir. Næstflest börn hafa komið frá Indlandi, 62 stúlkur og 34 drengir.

Frumættleiðingar á Íslandi hafa undanfarinn áratug yfirleitt verið mun færri en frumættleiðingar frá útlöndum. Hér er þó undanskilið árið 2006 en það ár voru börn sem frumættleidd voru frá Íslandi jafnmörg og þau sem komu frá útlöndum. Í þessu sambandi er þó rétt að geta þess að í allmörgum tilvikum höfðu börn sem ættleidd voru á Íslandi búið hjá kjörforeldrum sínum um nokkurra ára skeið áður en þau voru ættleidd.   

Stjúpættleiðingar voru óvenju margar árið 2006 miðað við fyrri ár en það ár voru þær 38. Árið 2007 voru stjúpættleiðingar jafnmargar og árið 2005 eða 27 talsins. Líkt og áður var kjörforeldri oftast stjúpfaðir, eða í 22 tilvikum. Í einu tilviki var stjúpmóðir kjörforeldri og fjórir einstaklingar í staðfestri samvist ættleiddu barn maka síns.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.