FRÉTT MANNFJÖLDI 09. JANÚAR 2006

Fyrir skömmu setti Hagstofan á vef sinn svonefnda mannfjöldaklukku í tilefni af því að íbúar landsins nálguðust 300.000. Talning mannfjöldaklukkunnar byggðist á stöðu íbúaskrár dag frá degi og raunverulegum og áætluðum fjölda fæðinga, andláta og skráninga á fólki sem fluttist til landsins og frá því.

Mannfjöldaklukkan sló 300.000 um kl. 7 í morgun mánudaginn 9. janúar 2006. Hagstofunni þykir við hæfi að það barn, sem fæddist hér á landi sem næst þessum tíma, teljist þrjú hundruð þúsundasti íbúi landsins. Þetta er drengur sem fæddist á fæðingardeild Landspítala-háskólasjúkrahúss á sjöunda tímanum í morgun, sonur Erlu Maríu Andrésdóttur og Haraldar Arnarsonar í Reykjanesbæ.

Til að fagna þessum tímamótum ætla forsætisráðherra og hagstofustjóri að heimsækja barnið og foreldra þess á fæðingardeildina á morgun þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.00.

Frétt um mannfjölda 1. desember 2005

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.