FRÉTT MANNFJÖLDI 15. OKTÓBER 2010

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt
15. október kl. 10.58 frá upprunalegri útgáfu

Í lok 3. ársfjórðungs 2010 bjuggu 318.200 manns á Íslandi, 160.000 karlar og 158.200 konur. Erlendir ríkisborgarar voru 21.500 í lok 3. ársfjórðungs 2010. Á höfuðborgarsvæðinu einu bjuggu 201.900 manns.

Á þriðja ársfjórðungi 2010 fæddust 1.300 börn, en 490 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust frá landinu 510 einstaklingar umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 920 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 410 fleiri en þeir sem fluttu frá landinu. Jafnmargir karlar og konur fluttu frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 650 manns í ársfjórðungnum af 1.900 alls. Næstflestir fóru til Noregs eða 540. Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands eða 230 manns af 640.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (400), Noregi (180) og Svíþjóð (140), samtals 710 manns af 980. Erlendir ríkisborgarar voru hins vegar flestir frá Póllandi, 290 af alls 1.100 erlendum innflytjendum.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi  2010
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 318.200 160.000 158.200
Fæddir 1.300 650 640
Dánir 490 250 240
Aðfluttir umfram brottflutta -510 -230 -280
Aðfluttir 2.000 1.000 1.000
Brottfluttir 2.500 1.300 1.300


Skýringar
Hagstofan hefur stofnað til nýrrar tímaraðar með tölum um mannfjöldann í lok hvers ársfjórðungs ásamt ársfjórðungsyfirliti yfir fæðingar, andlát og búferlaflutninga. Miðað er við að beðið sé í um 10 virka daga frá lokum ársfjórðungs eftir tilkynningum um fæðingar, andlát eða búferlaflutninga sem varða ársfjórðunginn. Tilkynningar sem skráðar eru síðar verða taldar með næsta ársfjórðungi á eftir. Hér er um að ræða aðra uppgjörsaðferð en þá sem notuð er í árstölum og miðárstölum Hagstofunnar, en í þeim er jafnan beðið a.m.k. einn mánuð eftir fæðingar- og dánartilkynningum, en flutningar eru gerðir upp eftir skráningarári.

Athygli er vakin á því að miklar tafir geta orðið á flutningstilkynningum eða þær jafnvel ekki afhentar. Slíkt getur skekkt tölur um búferlaflutninga.
Eðli máls samkvæmt er hér ekki um endanlegar tölur að ræða. Af þeim sökum eru allar tölur hærri en 1.000 námundaðar að næsta hundraði. Tölur á bilinu 51-1.000 eru námundaðar að næsta tug, lægri tölur að næsta hálfa tug.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.