FRÉTT MANNFJÖLDI 30. JANÚAR 2017

Í lok 4. ársfjórðungs 2016 bjuggu 338.450 manns á Íslandi, 171.110 karlar og 167.330 konur. Landsmönnum fjölgaði um 840 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 216.940 manns en 121.500 utan þess.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2016
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 338.450 171.110 167.330
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 337.610 170.510 167.100
Breyting 840 600 240
Fæddir 940 490 450
Dánir 590 300 290
Aðfluttir umfram brottflutta 470 410 70
Aðfluttir 2.750 1.710 1.040
Brottfluttir 2.280 1.300 980
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Á 4. ársfjórðungi 2016 fæddust 940 börn, en 590 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 470 einstaklingar til landsins umfram brottflutta, af þeim voru flestir á þrítugsaldri (160). Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 60 umfram brottflutta og var aldurskipting þeirra nokkuð jöfn. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 410 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu og voru 150 af þeim á þrítugsaldri.

Búferlaflutningar eftir aldurshópum á 4. ársfjórðungi 2016
  Alls Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar
  Aðfluttir umfram brottflutta Aðfluttir Brottfluttir Aðfluttir umfram brottflutta Aðfluttir Brottfluttir Aðfluttir umfram brottflutta Aðfluttir Brottfluttir
Alls 470 2.750 2.280 60 640 570 410 2.110 1.700
Yngri en 10 ára 40 220 170 10 110 90 30 110 80
10-19 ára 100 220 110 25 80 50 80 140 60
20-29 ára 160 1.110 950 15 170 150 150 940 790
30-39 ára 80 620 550 5 140 130 70 490 420
40-49 ára 70 340 270 10 80 70 60 260 200
50-59 ára 15 190 170 -5 45 45 20 140 120
60 ára og eldri 5 60 50 0 25 25 5 35 25

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 140 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 300 íslenskir ríkisborgarar af 570 alls. Af þeim 1.700 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 690 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (210), Noregi (170) og Svíþjóð (70), samtals 450 manns af 640. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 800 til landsins af alls 2.110 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 210 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 30.380 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.