FRÉTT MANNFJÖLDI 02. FEBRÚAR 2016

Í lok 4. ársfjórðungs 2015 bjuggu 332.750 manns á Íslandi, 167.410 karlar og 165.340 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.440 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 213.760 manns en 119.000 utan þess.

Á 4. ársfjórðungi 2015 fæddust 970 börn, en 520 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 990 einstaklingar til landsins umfram brottflutta, af þeim var tæplega helmingur á þrítugsaldri. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 160 umfram aðflutta og var aldurskipting þeirra nokkuð jöfn. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.140 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu og voru 740 af þeim 20-39 ára.

Búferlaflutningar eftir aldurshópum á 4. ársfjórðungi 2015
  Alls Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar
Aldur Aðfluttir umfram brottflutta Aðfluttir Brottfluttir Aðfluttir umfram brottflutta Aðfluttir Brottfluttir Aðfluttir umfram brottflutta Aðfluttir Brottfluttir
Alls 990 2.200 1.210 -160 490 650 1.140 1.710 560
Yngri en 10 ára 40 160 120 -30 70 100 70 90 25
10-19 ára 120 210 80 -10 70 70 130 140 10
20-29 ára 480 910 440 -35 140 180 510 770 260
30-39 ára 200 490 290 -25 100 120 230 390 160
40-49 ára 90 240 150 -35 60 90 130 190 60
50-59 ára 50 130 80 -10 45 60 60 90 25
60 ára og eldri 5 50 50 -15 15 30 20 35 20

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (150), Noregi (140) og Svíþjóð (60), samtals 350 manns af 490. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 650 til landsins af alls 1.710 erlendum ríkisborgurum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 80 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 26.690 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 420 íslenskir ríkisborgarar af 650 alls. Af þeim 560 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2015  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 332.750 167.410 165.340
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 331.310 166.590 164.720
Breyting 1.440 820 620
Fæddir 970 480 490
Dánir 520 260 260
Aðfluttir umfram brottflutta 990 590 400
Aðfluttir 2.200 1.250 940
Brottfluttir 1.210 670 550
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.