FRÉTT MANNFJÖLDI 26. OKTÓBER 2023

Í lok þriðja ársfjórðungs 2023 bjuggu 396.960 manns á Íslandi, 205.310 karlar, 191.500 konur og kynsegin/annað voru 160. Landsmönnum fjölgaði um 2.760 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 252.390 manns en 144.570 á landsbyggðinni.

Á þriðja ársfjórðungi 2023 fæddust 1.160 börn en 640 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 2.230 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 200 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.430 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 470 manns á þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 800 íslenskir ríkisborgarar af 1.010 alls. Af þeim 1.540 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 460 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (280), Svíþjóð (170) og Noregi (110), samtals 570 manns af 810. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 880 til landsins af alls 3.970 erlendum innflytjendum. Úkraína kom næst en þaðan fluttust 380 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 72.960 eða 18,4% af heildarmannfjöldanum.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Breytt úrvinnsla mannfjöldatalna
Manntal Hagstofunnar 1. janúar 2021 leiddi í ljós ofmat þjóðskrár á fjölda íbúa. Hagstofan hefur í kjölfarið unnið að endurbættum aðferðum við mat á íbúafjölda og hyggst birta mannfjöldatölur á nýjum grunni frá og með áramótum 2024.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.