FRÉTT MANNFJÖLDI 25. OKTÓBER 2022

Í lok þriðja ársfjórðungs 2022 bjuggu 385.230 manns á Íslandi, 198.280 karlar, 186.840 konur og kynsegin/annað voru 120. Landsmönnum fjölgaði um 3.860 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 245.850 manns en 139.380 á landsbyggðinni.

Á þriðja ársfjórðungi 2022 fæddust 1.200 börn en 650 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 3.270 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 3.410 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 420 manns á þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 720 íslenskir ríkisborgarar af 950 alls. Af þeim 1.270 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands eða 380 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (240), Noregi (130) og Svíþjóð (190), samtals 560 manns af 800. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.150 manns til landsins af alls 4.680 erlendum innflytjendum. Úkraína kom næst en þaðan fluttust 480 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 62.990 eða 16,4% af heildarmannfjöldanum.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.