FRÉTT MANNFJÖLDI 05. NÓVEMBER 2018

Í lok 3. ársfjórðungs 2018 bjuggu 355.620 manns á Íslandi, 182.040 karlar og 173.580 konur. Landsmönnum fjölgaði um 2.560 á ársfjórðungnum eða um 0,7%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 227.030 manns en 128.590 utan þess.

Alls fæddust 1.180 börn á 3. ársfjórðungi en 500 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.890 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 280 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.170 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 500 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 930 íslenskir ríkisborgarar af samtals 1.280 . Af þeim 1.440 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 480 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (280), Noregi (230) og Svíþjóð (190), samtals 700 manns af 1.000. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.140 til landsins af alls 3.610 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 330 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 43.430 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 12,2% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2018
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins355.620182.040173.580
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins353.070180.420172.650
Breyting2.5601.630930
Fæddir1.180630550
Dánir500250260
Aðfluttir umfram brottflutta1.8901.240650
Aðfluttir4.6202.6901.930
Brottfluttir2.7201.4501.270
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur hverju sinni samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.