FRÉTT MANNFJÖLDI 01. NÓVEMBER 2017

Í lok 3. ársfjórðungs 2017 bjuggu 346.750 manns á Íslandi, 176.590 karlar og 170.160 konur. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 221.480 manns en 125.270 utan þess.

Alls fæddust 1.100 börn á ársfjórðungnum en 530 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 2.180 fleiri einstaklingar til landsins en frá því. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.330 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 460 manns á 3. ársfjórðungi. Alls fluttust 1.320 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 970 til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 1.350 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 340 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð, 810 af 1.170. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.310 til landsins af alls 3.670 erlendum innflytjendum. Litháen (Lietuva) kom næst, en þaðan fluttust 350 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 36.690 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2017
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins 346.750 176.590 170.160
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins 343.960 174.810 169.150
Breyting 2.790 1.790 1.000
Fæddir 1.100 570 520
Dánir 530 270 270
Aðfluttir umfram brottflutta 2.180 1.450 730
Aðfluttir 4.850 2.880 1.970
Brottfluttir 2.670 1.430 1.240
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talanefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.