FRÉTT MANNFJÖLDI 02. NÓVEMBER 2016

Í lok 3. ársfjórðungs 2016 bjuggu 337.610 manns á Íslandi, 170.510 karlar og 167.100 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.550 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 216.300 manns en 121.310 utan þess.

Á 3. ársfjórðungi 2016 fæddust 1.150 börn, en 580 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 950 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 290 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.240 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri konur en karlar fluttust frá landinu.

 

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 500 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.050 íslenskir ríkisborgarar af 1.410 alls. Af þeim 1.060 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 250 manns.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2016
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 337.610 170.510 167.100
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 336.060 169.540 166.520
Breyting 1.550 970 580
Fæddir 1.150 560 590
Dánir 580 310 280
Aðfluttir umfram brottflutta 950 690 260
Aðfluttir 3.420 1.900 1.520
Brottfluttir 2.470 1.210 1.260
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (260), Noregi (310) og Svíþjóð (180), samtals 750 manns af 1.120. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 710 til landsins af alls 2.300 erlendum innflytjendum. Litháen (Lietuva) kom næst, en þaðan fluttust 180 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 29.990 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.