FRÉTT MANNFJÖLDI 26. JÚLÍ 2021

Í lok 2. ársfjórðungs 2021 bjuggu 371.580 manns á Íslandi, 190.480 karlar og 181.100 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.700 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 238.170 manns en 133.410 utan þess.

Á 2. ársfjórðungi 2021 fæddust 1.270 börn, en 570 einstaklingar létust. Hafa fæðingar á öðrum ársfjórðungi ekki verið fleiri frá 2010. Á sama tíma fluttust 950 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 350 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 610 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Svíþjóð var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 60 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 90 íslenskir ríkisborgarar af 290 alls. Af þeim 1.250 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 450 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (190), Noregi (130) og Svíþjóð (140), samtals 460 manns af 630. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 430 til landsins af alls 1.860 erlendum innflytjendum. Rúmenía kom næst, en þaðan fluttust 150 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 52.010 eða 14,0% af heildarmannfjöldanum.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2021
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs371.580190.480181.100
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs369.870189.580180.300
Breyting1.700900800
Fæddir1.270690580
Dánir570280290
Aðfluttir umfram brottflutta950470480
Aðfluttir2.4901.4901.010
Brottfluttir1.5401.020520
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.