FRÉTT MANNFJÖLDI 17. JÚLÍ 2020

Samtals bjuggu 366.700 manns á Íslandi, 188.330 karlar og 178.370 konur. Landsmönnum fjölgaði um 560 á ársfjórðungnum eða um 0,2%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 234.910 manns en 131.790 utan þess.

Fæddir og dánir eftir ársfjórðungum 2010–2020

Flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara neikvæður í fyrsta sinn síðan 2012
Alls fæddust 1.090 börn á 2. ársfjórðungi 2020, en 550 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 25 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 280 umfram brottflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 260 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 80 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 170 íslenskir ríkisborgarar af 290 alls. Af þeim 1.350 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 430 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (60) og Svíþjóð (110), samtals 350 manns af 570. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 270 til landsins af alls 1.100 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 80 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok annars ársfjórðungs bjuggu 50.670 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,8% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2020
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs366.700188.330178.370
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs366.130188.040178.090
Breyting560290280
Fæddir1.090610480
Dánir550280270
Aðfluttir umfram brottflutta25-4570
Aðfluttir1.670960710
Brottfluttir1.6401.010630
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.