FRÉTT MANNFJÖLDI 28. JÚLÍ 2016

Í lok 2. ársfjórðungs 2016 bjuggu 336.060 manns á Íslandi, 169.540 karlar og 166.520 konur, og hafði landsmönnum fjölgað um 1.760 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 215.380 manns en 120.680 utan höfuðborgarsvæðisins.

Á 2. ársfjórðungi 2016 fæddust 950 börn, en 550 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.490 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 150 umfram brottflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.330 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 160 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 320 íslenskir ríkisborgarar af 560 alls. Af þeim 530 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (180), Noregi (220) og Svíþjóð (100), samtals 500 manns af 720. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 740 til landsins af alls 1.870 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 180 erlendir ríkisborgarar til Íslands. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 28.880 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 8,6% mannfjöldans.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2016
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 336.060 169.540 166.520
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 334.300 168.360 165.930
Breyting 1.760 1.180 580
Fæddir 950 490 460
Dánir 550 270 280
Aðfluttir umfram brottflutta 1.490 1.020 470
Aðfluttir 2.580 1.580 1.000
Brottfluttir 1.090 560 540
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.