FRÉTT MANNFJÖLDI 04. MAÍ 2021

Samtals bjuggu 369.870 manns á Íslandi í lok fyrsta ársfjórðungs 2021, 189.580 karlar og 180.300 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.290 á ársfjórðungnum eða um 0,3%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 237.470 manns en 132.400 utan þess.

Flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara jákvæður
Á fyrsta ársfjórðungi 2021 fæddust 1.140 börn en 580 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 530 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 180 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 350 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 60 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 120 íslenskir ríkisborgarar af 280 alls. Af þeim 980 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 360 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (50) og Svíþjóð (70), samtals 260 manns af 460. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 290 til landsins af alls 1.330 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttust 120 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2021
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs369.870189.580180.300
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs368.590188.900179.680
Breyting1.290680610
Fæddir1.140610530
Dánir580290290
Aðfluttir umfram brottflutta530230290
Aðfluttir1.7901.050730
Brottfluttir1.260820440
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.