FRÉTT MANNFJÖLDI 27. APRÍL 2020

Samtals bjuggu 366.130 manns á Íslandi í lok 1. ársfjórðungs 2020, 188.040 karlar og 178.090 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.870 á ársfjórðungnum eða um 0,5%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 234.400 manns en 131.730 utan þess.

Alls fæddust 1.080 börn á 1. ársfjórðungi 2020, en 620 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.410 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 40 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.450 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands
Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 140 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 260 íslenskir ríkisborgarar af 550 alls. Af þeim 1.170 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 390 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (180), Noregi (60) og Svíþjóð (80), samtals 320 manns af 510. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 820 til landsins af alls 2.620 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 220 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 50.940 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2020
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins366.130188.040178.090
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins364.260186.960177.300
Breyting1.8701.080790
Fæddir1.080570510
Dánir620290320
Aðfluttir umfram brottflutta1.410800610
Aðfluttir3.1301.7801.350
Brottfluttir1.720980740

Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.