Í lok 1. ársfjórðungs 2019 bjuggu alls 358.780 manns á Íslandi, 183.920 karlar og 174.860 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.730 á ársfjórðungnum eða um 0,5%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 229.490 manns en 129.290 utan þess.

Fæddir og dánir eftir ársfjórðungum 2010–2019

Alls fæddust 1.030 börn á 1. ársfjórðungi, en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.260 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram aðflutta. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.390 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 160 manns á 1. ársfjórðungi. Alls fluttust 600 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 310 til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 940 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 330 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (70) og Svíþjóð (80), samtals 320 manns af 470. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 650 til landsins af alls 2.330 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 270 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 45.670 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 12,7% af heildarmannfjölda.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2019
 AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungsins358.780183.920174.860
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungsins357.050182.870174.180
Breyting1.7301.050690
Fæddir1.030510520
Dánir560280280
Aðfluttir umfram brottflutta1.260810450
Aðfluttir2.7901.6901.100
Brottfluttir1.530880660
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Mannfjöldinn er reiknaður eins og hann stendur samkvæmt þjóðskrá.

Talnaefni