FRÉTT MANNFJÖLDI 23. APRÍL 2014

Í lok 1. ársfjórðungs 2014 bjuggu 326.340 manns á Íslandi, 163.660 karlar og 162.680 konur. Landsmönnum fjölgaði um 720 á ársfjórðungnum.  Á fjórðungum fæddust 1.060 börn, en 540 einstaklingar létust og var náttúrleg fjölgun á landinu rúmlega 500 einstaklingar.  Á sama tíma fluttust 190 einstaklingar til landsins umfram brottflutta.

Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 200 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 380 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Erlendir ríkisborgarar voru því 23.060 í lok ársfjórðungsins.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 240 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 490 íslenskir ríkisborgarar af 700 alls. Af þeim 500 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 120 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (130) og Svíþjóð (80), samtals 380 manns af 500. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 260 til landsins af alls 890 erlendum innflytjendum. Tékkland kom næst, en þaðan fluttust 50 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2014  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 326.340 163.660 162.680
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 325.620 163.280 162.340
Breyting 720 380 340
Fæddir 1.060 530 530
Dánir 540 270 270
Aðfluttir umfram brottflutta 190 110 80
Aðfluttir 1.390 770 620
Brottfluttir 1.200 660 550
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.