FRÉTT MANNFJÖLDI 16. JANÚAR 2012

Í lok 4. ársfjórðungs 2011 bjuggu 319.560 manns á Íslandi, 160.360 karlar og 159.200 konur. Landsmönnum fjölgaði um 470 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.930 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.570 manns.
 
Á 4. ársfjórðungi 2011 fæddust 1.020 börn, en 500 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 70 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 15 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 50 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
 
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 240 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 370 íslenskir ríkisborgarar af 620 alls. Af þeim 720 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 210 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (220), Noregi (140) og Svíþjóð (90), samtals 450 manns af 610. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 260 til landsins af alls 660 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 40 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2011  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 319.560 160.360 159.200
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 319.090 160.130 158.960
Breyting 470 230 240
Fæddir 1.020 550 470
Dánir 500 240 260
Aðfluttir umfram brottflutta -70 -90 20
Aðfluttir 1.270 670 600
Brottfluttir 1.340 750 580
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.