FRÉTT MANNFJÖLDI 17. JANÚAR 2011

Í lok 4. ársfjórðungs 2010 bjuggu 318.500 manns á Íslandi, 160.000 karlar og 158.500 konur. Landsmönnum  fjölgaði um 280 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.200 og á  höfuðborgarsvæðinu bjuggu 202.400 manns.
 
Á 4. ársfjórðungi 2010 fæddust 1.200 börn, en 510 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttu 440 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 140 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 300 fleiri en þeir sem fluttu til landsins. Fleiri karlar en konur fluttu frá landinu.
 
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttu 250 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttu 500 íslenskir ríkisborgarar af 750 alls. Af þeim 1.100 erlendu ríkisborgurum sem fluttu frá landinu fóru flestir til Póllands, 370 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (250), Noregi (130) og Svíþjóð (80), samtals 460 manns af 610. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttu 210 af alls 800 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst en þaðan fluttu 80 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 4. ársfjórðungi 2010
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 318.500 160.000 158.500
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 318.200 160.000 158.200
Breyting 280 60 220
Fæddir 1.200 640 580
Dánir 510 270 250
Aðfluttir umfram brottflutta -440 -320 -120
Aðfluttir 1.400 780 630
Brottfluttir 1.900 1.100 750

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.