FRÉTT MANNFJÖLDI 15. APRÍL 2011

Í lok 1. ársfjórðungs 2011 bjuggu 319.100 manns á Íslandi, 160.300 karlar og 158.800 konur. Landsmönnum fjölgaði um 600 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.400 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.000 manns.

Á 1. ársfjórðungi 2011 fæddust 1.100 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 15 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 270 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 260 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 320 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 620 íslenskir ríkisborgarar af 840 alls. Af þeim 380 erlendu ríkisborgurum sem fluttust brott af landinu fóru flestir til Póllands, 160 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (240), Noregi (130) og Svíþjóð (60), samtals 420 manns af 570. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 170 af alls 640 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst en þaðan fluttust 45 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2011
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 319.100 160.300 158.800
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 318.500 160.000 158.500
Breyting 600 240 360
Fæddir 1.100 580 560
Dánir 540 280 260
Aðfluttir umfram brottflutta -15 -70 50
Aðfluttir 1.200 620 580
Brottfluttir 1.200 690 530

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.