Mannfjöldi á Íslandi var 394.324 þann 1. janúar 2026 og hafði íbúum fjölgað um 4.880 frá 1. janúar 2025 eða um 1,3%. Alls voru 202.181 karlar, 191.927 konur og 216 kynsegin/annað búsett á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 1,3% frá fyrra ári, konum um 1,2% og kynsegin/öðru um 8,5%.
Hlutfall aldraðra aldrei verið hærra
Á undanförnum áratugum hefur aldurssamsetning landsmanna breyst töluvert. Almennt má segja að börnum hafi fækkað hlutfallslega en eldra fólki fjölgað. Framfærsluhlutfall er annars vegar reiknað sem hlutfall aldraðra (65+) af fólki á vinnualdri 20–64 ára og hins vegar sem hlutfall barna og ungmenna (0–19 ára) af sama hópi. Á síðastliðnum tíu árum hefur hlutfall fólks á aldrinum 0–19 ára lækkað úr 45,9% í 40,3% af fólki á vinnualdri en hlutfall aldraðra (65+) aukist úr 23,9% í 27,0% og hefur aldrei verið hærra.
Hlutfallsleg fólksfjölgun mest á Suðurlandi
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 2.858 fleiri þann 1. janúar 2026 en fyrir ári. Það jafngildir 1,1% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallsleg fólksfjölgun var mest á Suðurlandi þar sem fjölgaði um 3,7% á síðasta ári. Á Vestfjörðum var fjölgunin 2,3% og 1,3% á Vesturlandi. Í öðrum landshlutum var fólksfjölgun undir landsmeðaltali. Á Norðurlandi eystra fjölgaði um 0,8%, á Suðurnesjum fjölgaði um 0,2% og á Norðurlandi vestra stóð mannfjöldinn í stað (0,0%). Hins vegar fækkaði íbúum á Austurlandi um sex einstaklinga (0,1%).
Íbúum fækkaði í 9 af 62 sveitarfélögum
Sveitarfélög á Íslandi voru alls 62 þann 1. janúar 2026 og stóð í stað frá fyrra ári. Reykjavík var fjölmennasta sveitarfélagið með 139.804 íbúa en Tjörneshreppur það fámennasta með 54. Alls höfðu 26 sveitarfélög færri en 1.000 íbúa, þar af þrjú með færri en 100 íbúa. Í ellefu sveitarfélögum voru 5.000 íbúar eða fleiri.
Í fyrra fækkaði íbúum í 14 af 62 sveitarfélögum landsins. Mest var fækkunin í Grindavíkurbæ en þar fækkaði um 427 íbúa og nam fækkunin 34,3 % á milli ára. Af ellefu stærstu sveitarfélögunum, með 5.000 íbúa eða fleiri, fjölgaði hlutfallslega mest í Sveitarfélaginu Árborg eða um 5,0% og í Garðabæ um 3,0%. Í Reykjavíkurborg var fjölgunin undir landsmeðaltali eða 0,7%. Af ellefu stærstu sveitarfélögunum fækkaði einungis í einu þeirra en það var í Fjarðabyggð (0,4%).
Talnaefni
Yfirlit
Sveitarfélög
Fjölskyldan