Þann 1. janúar síðastliðinn var íbúafjöldi á Íslandi 356.991 sem er 2,5% fjölgun frá sama tíma árið áður, eða um 8.541 einstaklinga. Þetta er eitt af því sem gerð er grein fyrir í Hagtíðindum um mannfjöldaþróun ársins 2018 sem Hagstofan hefur gefið út.

Árið 2018 fæddust 4.228 börn en 2.254 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 1.974. Þá fluttust 7.719 utan en 14.275 til landsins. Aðfluttir umfram brottflutta voru því 6.556 árið 2018, 4.138 karlar og 2.418 konur. Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta voru 130 árið 2018.

Í upphafi árs 2019 voru 62 þéttbýlisstaðir á landinu með 200 íbúa eða fleiri. Auk þeirra voru 35 smærri byggðakjarnar með 50–199 íbúa. Alls bjuggu 334.404 í þétt¬býli 1. janúar síðastliðinn og hafði þá fjölgað um 3.845 frá sama tíma ári fyrr. Í dreif¬býli og smærri byggðakjörnum bjuggu alls 22.587.

Fjölmennasta sveitarfélagið var Reykjavík með 128.793 íbúa. Það fámennasta var hins vegar Árneshreppur þar sem bjuggu 40 íbúar. Árið 2018 fækkaði fólki í 20 sveitarfélögum og á einu landsvæðum af átta. Fólki á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði árið 2018, en 1. janúar 2019 bjuggu þar 5.747 fleiri en árið áður. Það jafngildir 2,6% fjölgun íbúa á einu ári.

Innflytjendur voru 50.272 hinn 1. janúar 2019 og voru Pólverjar langfjölmennastir, eða 19.172 en það samsvarar 38,1% allra innflytjenda. Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði milli ára, voru 4.861 í fyrra samanborið við 5.263 1. janúar 2019.

Mannfjöldaþróun 2018 — Hagtíðindi