FRÉTT MANNFJÖLDI 27. NÓVEMBER 2014

Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á árinu 2013 en Katrín vinsælasta stúlkunafnið.

Þór var langvinsælasta annað eiginnafnið hjá drengjum, en þar á eftir Freyr og Máni. María var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum ásamt Rós, en þessi nöfn hafa vermt annað og fjórða sætið undanfarin ár. Á eftir þeim kom stúlkunafnið Lilja sem þriðja vinsælasta síðara eiginnafn nýfæddra stúlkna.

Þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun 2014 voru 10 algengustu einnefnin og fyrstu eiginnöfnin alveg þau sömu og árið 2009.  Hjá körlum var Jón algengasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún algengast, þá Anna og svo Kristín. Tíu algengustu karl- og kvenmannsnöfnin hafa verið þau sömu frá 2009.

Flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn. Í ársbyrjun 2014 voru þrjár algengustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár algengustu samsetningarnar Anna María,  Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2009. Kvenmannsnafnið Anna er hins vegar afar vinsælt sem fyrra nafn, en hún reyndist fyrra nafnið í sex af 10 algengustu tvínefnunum.

Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt yfir árið. Algengara er að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, frá október og fram í mars. Alls eru 51,5% allra afmælisdaganna frá apríl til september. Í upphafi árs 2014 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. september, alls 1.014 einstaklingar. Fæstir áttu afmælisdag á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 208 manns. Að öðru leyti eru jóladagur (657) og aðfangadagur (707).

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.