FRÉTT MANNFJÖLDI 24. JÚNÍ 2015

Árið 2014 var meðalævilengd karla 80,6 ár og meðalævilengd kvenna 83,6 ár á Íslandi.

Meðalævilengd sýnir hve mörg æviár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Frá árinu 1985 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum árum í meðalævilengd (sjá mynd hér að neðan).

Sé horft á tíu ára tímabil, 2004-2013, var meðalævi karla á Íslandi og í Sviss 79,1 ár og skipuðu þeir fyrsta sætið meðal Evrópulanda. Fast á hæla þeim komu karlar frá Svíþjóð og Liechtenstein (78,5 ár), þá Ítalíu (78,3) og Noregi (77,9 ár). Stysta meðalævilengd evrópskra karla er í Eistlandi (68,8), Lettlandi (66,4) og Litháen (66,1).

Á sama tíu ára tímabili, 2004-2013, var meðalævi kvenna í Frakklandi og á Spáni 84,1 ár og skipuðu þær fyrsta sætið í Evrópu. Á eftir þeim koma konur frá Sviss (83,8), Ítalíu og Liechtenstein (83,6) og Íslandi (82,7 ár). Meðalævilengd kvenna er styst í Búlgaríu (76,8), Makedóníu (76,3) og Serbíu (76,1 ár).

Ungbarnadauði minnstur á Íslandi af löndum Evrópu
Árið 2014 létust 2.049 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.050 karlar og 999 konur. Dánartíðni var 6,3 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði 2,1 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2014.

Á tíu ára tímabili, 2004-2013, var meðalungbarnadauði á Íslandi 1,9 af 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafnsjaldgæfur og hér. Meðalungbarnadauði var 2,6 í Svíþjóð og Finnlandi, 2,9 í Noregi, Slóveníu, Lúxemborg og Tékklandi. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi, 11,6 af hverjum 1.000 lifandi fæddum.

Skýringar
Hér er um að ræða bráðabirgðatölur yfir dána fyrir árið 2014. Þær verða endurskoðaðar í byrjun september 2015.

Ungbarnadauði er alþjóðleg stöðluð vísitala á dánartíðni barna á fyrsta aldursári. Hún er reiknuð með því að deila fjölda látinna á fyrsta aldursári með fjölda lifandi fæddra í árgangi og margfalda niðurstöðuna með 1.000.

Við samanburð á tölum um ævilengd og ungbarnadauða í Evrópu er rétt að geta þess að íslensku tölurnar fyrir 2004-2013 byggjast á útreikningum Eurostat.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.