Í lok 1. ársfjórðungs 2012 bjuggu 320.060 manns á Íslandi, 160.610 karlar og 159.450 konur. Landsmönnum fjölgaði um 500 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.950 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.970 manns.
Á 1. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.060 börn, en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 10 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 140 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.
Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 270 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 540 íslenskir ríkisborgarar af 770 alls. Af þeim 450 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 150 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru frá Danmörku (270), Noregi (150) og Svíþjóð (60), samtals 490 manns af 640. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 180 til landsins af alls 600 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 35 erlendir ríkisborgarar til landsins.
Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2012 | |||
Alls | Karlar | Konur | |
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs | 320.060 | 160.610 | 159.450 |
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs | 319.560 | 160.360 | 159.200 |
Breyting | 500 | 250 | 250 |
Fæddir | 1.060 | 580 | 490 |
Dánir | 560 | 280 | 280 |
Aðfluttir umfram brottflutta | 10 | -30 | 40 |
Aðfluttir | 1.240 | 630 | 600 |
Brottfluttir | 1.230 | 670 | 560 |
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar. |
Talnaefni