FRÉTT MANNFJÖLDI 11. MAÍ 2015

Í lok 1. ársfjórðungs 2015 bjuggu 329.740 manns á Íslandi, 165.650 karlar og 164.090 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 211.830 manns en 117.920 utan höfuðborgarsvæðis.

Á 1. ársfjórðungi 2015 fæddust 990 börn, en 600 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 290 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 370 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 660 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 220 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 530 íslenskir ríkisborgarar af 800 alls. Af þeim 430 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 100 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (120), Noregi (110) og Svíþjóð (60), samtals 300 manns af 430. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.090 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 70 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 24.730 erlendir ríkisborgarar á Íslandi.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 1. ársfjórðungi 2015
Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 329.740 165.650 164.090
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 329.040 165.150 163.890
Breyting 700 500 200
Fæddir 990 530 460
Dánir 600 270 330
Aðfluttir umfram brottflutta 290 240 60
Aðfluttir 1.520 900 620
Brottfluttir 1.230 670 560
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.