FRÉTT MANNFJÖLDI 17. JÚLÍ 2012

Í lok 2. ársfjórðungs 2012 bjuggu 320.160 manns á Íslandi, 160.600 karlar og 159.560 konur. Landsmönnum fjölgaði um 100 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.570 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.970 manns.

Á 2. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.160 börn, en 440 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 610 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 220 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 380 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 340 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 610 íslenskir ríkisborgarar af 870. Af þeim 910 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 350 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (190), Noregi (150) og Svíþjóð (90), samtals 430 manns af 650. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 170 til landsins af 530 erlendum innflytjendum. Bandaríkin komu næst, en þaðan fluttust 35 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 2. ársfjórðungi 2012  
  Alls Karlar Konur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs 320.160 160.600 159.560
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs 320.060 160.610 159.450
Breyting 100 -10 110
Fæddir 1.160 600 560
Dánir 440 210 230
Aðfluttir umfram brottflutta -610 -390 -210
Aðfluttir 1.180 630 550
Brottfluttir 1.790 1.020 760
Allar tölur eru námundaðar að næsta tug ef mannfjöldinn er meiri en 50 en að næsta hálfa tug ef talan er lægri. Ekki er tryggt að tölur gangi upp í samtölur vegna námundunarinnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.