FRÉTT MANNFJÖLDI 25. OKTÓBER 2016

Hinn 1. janúar 2016 voru 31.812 innflytjendur á Íslandi eða 9,6% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 8,9% landsmanna (29.192). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram, en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans uppí 9,6%. Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 3.846 í fyrra en 4.158 nú. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 10,8% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,6% mannfjöldans í fyrra en 6,7% nú.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir innflytjenda
Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 11.988 einstaklingar frá Póllandi eða 37,7% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litháen (Lietuva) (5,1%) og Filippseyjum (4,8%). Pólskir karlar eru 41,5% allra karlkyns innflytjenda eða 6.519 af 15.707. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (5,3%) og síðan karlar með uppruna frá Bretlandi (3,6%). Pólskar konur eru 34,0% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (6,5%), þá konur frá Þýskalandi og Thailandi (4,9%).

Á Suðurnesjum eru 16% mannfjöldans innflytjendur
Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 23.707 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 65,9% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum, en þar voru 16,0% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 14,1% mannfjöldans voru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra, en þar voru 5,1% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.



801 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2015
Í fyrra fengu 801 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það mikil fjölgun frá fyrra ári þegar 595 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 801 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir verið með ríkisfang frá Póllandi eða 265 og næst flestir með verið með ríkisfang frá Filippseyjum (74). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang, en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við í fyrra þegar 483 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 318 karlar.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.