FRÉTT MANNFJÖLDI 28. MAÍ 2008

Árið 2007 gengu 1.708 pör í hjónaband. Auk þess staðfestu 19 pör samkynhneigðra samvist, tíu pör karla og níu kvenna. Á sama tíma skráðu 2.089 gagnkynhneigð pör sig í óvígða sambúð. Með lögum 65/2006 frá Alþingi var samkynhneigðum gert kleift að skrá sig í sambúð hjá Þjóðskrá. Það ár skráðu sig 52 pör samkynhneigðra í sambúð. Árið 2007 féll þessi tala í 32 pör, 13 pör karla og 19 kvenna. Lögskilnaðir árið 2007 voru 515 og 603 pör skráðu sig úr sambúð.

Líkt og annars staðar á Norðurlöndum er giftingartíðni fremur lág hér á landi. Giftingartíðni reiknuð sem fjöldi hjónavígsla á hverja 1.000 íbúa var 5,5 árið 2007 samanborið við 5,8 ári fyrr. Giftingartíðni lækkaði ört frá miðjum 8. áratugnum og náði sögulegu lágmarki árið 1990 en þá var giftingartíðni 4,5 af hverjum 1.000 íbúum. Eftir það hækkaði giftingartíðnin og hefur verið á bilinu 5,2 til 5,8 frá síðustu aldamótum. 

Langflest hjónabönd eiga sér stað að undangenginni óvígðri sambúð. Samkvæmt upplýsingum af hjónavígsluskýrslum bjuggu 85% allra hjónaefna saman áður en þau festu ráð sitt. Skráðar sambúðir eru alla jafna fleiri en hjónavígslur. Stofnaðar sambúðir voru 6,7 af 1.000 íbúum árið 2007.

Meðalgiftingaraldur og meðalaldur við stofnun sambúðar hefur hækkað ört undanfarna áratugi. Lægstur varð meðalgiftingaraldur í upphafi 8. áratugar 20. aldar en þá voru áður ógiftir karlar 24,8 ára þegar þeir gengu í hjónaband en konur 22,9 ára. Nú er meðalgiftingaraldur áður ógiftra karla 34 ár en kvenna 31,9. Meðalaldur við stofnun sambúðar er 29,3 ár meðal karla en 27,2 ár meðal kvenna.  


Þótt giftingartíðni hafi hækkað á undanförnum árum hefur skilnaðartíðni staðið í stað. Skilnaðartíðni hækkaði úr um það bil 1 í 2 á hverja 1.000 íbúa á 8. áratug 20. aldar en hefur verið stöðug síðan þá. Samanborið við önnur lönd í norðan- og vestanverðri Evrópu er skilnaðartíðni hér á landi lág. Af einstökum Norðurlöndum er skilnaðartíðni hæst í Danmörku (um 2,8 á 1.000 íbúa).

Skilnaðartíðni mæld sem skilnaðir á hverja 1.000 íbúa gefur nokkuð misvísandi mynd af umfangi skilnaða. Það gefur auga leið að í löndum þar sem giftingartíðni er lág getur skilnaðartíðni tæpast orðið mjög há. Þótt skilnaðartíðni sé þannig jafn há í tveimur samfélögum merkir það ekki endilega að jafnmörg hjónabönd endi með skilnaði. Uppsafnað skilnaðarhlutfall gefur betri mynd af tíðni skilnaða, en þetta hlutfall mælir hversu mörg hjónabönd enda með skilnaði. Uppsafnað skilnaðarhlutfall var 34% árið 2007 miðað við 35% árið 2006. Alls staðar á Norðurlöndum er uppsafnað skilnaðarhlutfall hærra en hér, hæst í Svíþjóð en þar enda 55% hjónabanda með skilnaði.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.