FRÉTT MANNFJÖLDI 24. APRÍL 2020

Að meðaltali dóu 45,9 á viku fyrstu fimmtán vikur áranna 2017-2019. Fyrstu fimmtán vikur ársins 2020 dóu aðeins færri eða 44,3 að meðaltali á hverri viku. Að jafnaði dóu flestir í aldursflokknum 85 ára og eldri yfir tímabil 2017-2019 en það var einnig algengasti aldursflokkur þeirra sem dóu fyrstu fimmtán vikur ársins 2020. Tíðasti aldur látinna fyrstu fimmtán vikum 2020 var 83 ára en 87 ára fyrir sömu vikur áranna 2017-2019.

Á myndinni hér að neðan má sjá línurit yfir þróun á vikulegri dánartíðni árin 2017 – 2020. Til að sýna betur þróun vikulegrar dánartíðni eru línurnar í myndritinu tregbreytilegar og er miðað við 10 vikna hlaupandi meðaltal í stað þess að sýna hráar talningar gagnanna. Með þessu móti er auðveldara að bera saman og skoða þróun yfir árin sem liggja til grundvallar enda er vikuleg dánartíðni yfirleitt mjög lág fyrir Ísland og tölurnar talsvert flöktandi frá einni viku til þeirrar næstu.

Sjá nánar: Dánir

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.