FRÉTT MANNFJÖLDI 14. APRÍL 2023

Árið 2022 fluttust óvenju margir til Íslands og hafa aðfluttir umfram brottflutta aldrei verið fleiri á einu ári eða 9.764 manns. Þetta eru um tvöfalt fleiri en árið 2021 þegar 4.920 fleiri fluttust til landsins en frá því. Áður var flutningsjöfnuður mestur árin 2017 þegar um 8.240 fleiri fluttust til landsins en frá því.

Á síðasta ári fluttust 17.487 til landsins og hafa aldrei fleiri flust til landsins á einu ári. Áður höfðu flestir flust til landsins árið 2017, eða 14.929. Þá fluttust 7.723 manns frá landinu árið 2022 samanborið við 6.024 árið 2021. Ef einungis er litið til erlendra ríkisborgara var flutningsjöfnuður 10.341 manns og hefur hann aldrei verið jafn mikill á einu ári. Árið 2017 var flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara 7.888. Flutningsjöfnuður á meðal íslenskra ríkisborgara var neikvæður en brottfluttir voru 577 fleiri en aðfluttir árið 2022. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara var jákvæður árið 2021 um 828.

Flestir íslenskir ríkisborgarar fluttust til Danmerkur
Af þeim 2.626 íslensku ríkisborgurum sem fluttu af landi brott árið 2022 fóru 1.805 til Danmerkur, Svíþjóðar eða Noregs. Flestir fluttu til Danmerkur, eða 1.146, en næst flestir til Svíþjóðar eða 443. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu einnig frá þessum löndum eða 1.401 af 2.049. Flestir komu frá Danmörku eða 663. Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust á sama tíma til Póllands eða 1.617 af 5.097. Þaðan komu líka 3.770 erlendir ríkisborgarar á síðasta ári af 15.438. Einnig fluttu 2.282 erlendir ríkisborgarar frá Úkraínu til landsins árið 2022.

Rúmlega 37% aðfluttra og tæplega 42% brottfluttra á aldursbilinu 20–29 ára
Eins og síðustu ár var fjölmennasti hópur aðfluttra og brottfluttra árið 2022 á aldrinum 20–29 ára. Rúmlega 41% brottfluttra var á þessu aldursbili og einnig rúmlega 37% aðfluttra. Af einstökum árgöngum var 25 ára fjölmennasti hópurinn af brottfluttum (401) sem og fjölmennasti hópurinn af þeim sem fluttust til landsins eða 741.

Hagstæðasti flutningsjöfnuðurinn innanlands var á Suðurlandi
Þegar aðeins er horft til flutninga innanlands á milli landshluta voru fjórir landshlutar með hagstæðan flutningsjöfnuð árið 2022. Flutningsjöfnuður var hagstæðastur á Suðurlandi en þangað fluttu 325 umfram brottflutta frá öðrum landshlutum. Þar á eftir komu Suðurnes með flutningsjöfnuð upp á 288. Einnig var flutningsjöfnuður hagstæður á Norðurlandi eystra (143) og Vesturlandi (54). Í öðrum landshlutum var flutningsjöfnuður neikvæður vegna innanlandsflutninga. Óhagstæðastur var hann á höfuðborgarsvæðinu (-669), Norðurlandi vestra (-85), Austurlandi (-50) og Vestfjörðum (-6).

Árið 2022 nutu allir landshlutar góðs af flutningum á milli landa enda flutningsjöfnuður þeirra jákvæður. Langflestir þeirra 9.764 einstaklinga sem fluttust til Íslands, umfram brottflutta, settust að á höfuðborgarsvæðinu (6.067) en einnig settist stór hópur að á Suðurnesjunum (1.487). Þegar litið er til flutninga, bæði innanlands og utan, voru allir landshlutar með jákvæðan flutningsjöfnuð árið 2022.

Aðferðir
Hagstofan metur búferlaflutninga á grundvelli upplýsinga um breytingar á lögheimili í íbúaskrá Þjóðskrár. Búferlaflutningar eru gerðir upp á grundvelli skráningardags í þjóðskrá en ekki eftir því hvenær flutningur átti sér stað. Rétt er að hafa í huga að nokkur töf getur orðið á því að erlendir ríkisborgarar sem fá dvalarleyfi séu skráðir í íbúaskrá og að sama skapi getur dregist að þeir einstaklingar sem flytjast af landi brott séu felldir úr íbúaskrá. Sé unnið við skráningu jafnt og þétt yfir árið hefur þetta þó aðeins smávægileg áhrif á heildartölurnar.

Talnaefni
Búferlaflutningar innanlands
Búferlaflutningar milli landa

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.