FRÉTT MANNFJÖLDI 13. FEBRÚAR 2015

Árið 2014 fluttust 1.113 fleiri til landsins en frá því. Það eru heldur færri en í fyrra, þegar 1.598 fleiri fluttust til landsins heldur en frá því. Á árinu 2014 fluttust 6.988 til landsins, samanborið við 7.071 á árinu 2013.

Alls fluttust 5.875 manns frá Íslandi árið 2014 og er það í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem að brottfluttum fjölgar á milli ára, en árið 2013 fluttust 5.473 manns frá landinu. Fjöldi brottfluttra frá Íslandi árið 2014 er þó langt frá því að vera nálægt því sem var árið 2009, þegar 10.612 fluttust erlendis.

Íslenskir ríkisborgarar voru 922 fleiri en erlendir í hópi brottfluttra, eða 3.400 á móti 2.478. Íslenskir ríkisborgarar voru aftur á móti færri meðal aðfluttra en erlendir, 2.640 á móti 4.348. Alls fluttust því 760 íslenskir ríkisborgarar úr landi umfram aðflutta, á meðan aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.873 fleiri en brottfluttir.

Flestir fluttust til Noregs
Árið 2014 fluttust 2.396 íslenskir ríkisborgarar til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar af 3.400 sem þangað fluttu. Eins og frá árinu 2009 fluttust flestir til Noregs, eða 1.004. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu einnig frá þessum löndum eða 1.837 af 2.640, flestir þó frá Danmörku eða 771.

Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, eða 601 af 2.475. Þaðan komu líka 1.393 erlendir ríkisborgarar. Hafa aðfluttir umfram brottflutta frá Póllandi ekki verið fleiri síðan 2008, en það ár komu 1.114 fleiri erlendir ríkisborgarar frá Póllandi heldur en fluttu þangað en 792 árið 2014.

38% aðfluttra og brottfluttra á aldursbilinu 20-29 ára
Árið 2014 var fjölmennasti hópur aðfluttra og brottfluttra á aldrinum 20-29 ára. Rúmlega 37% brottfluttra var á þessu aldursbili og tæplega 39% aðfluttra. Af einstökum árgöngum var 23 ára fjölmennasti hópurinn af brottfluttum (256) en jafn margir á aldrinum 24 ára og 25 ára fluttu til landsins, eða 304. Í öllum aldursflokkum voru aðfluttir fleiri en brottfluttir nema í aldurshópnum 65–69 ára.

Körlum fjölgar á ný vegna búferlaflutninga

Árið 2014 fluttu 700 fleiri karlar til landsins en frá því og 413 konur. Fram til ársins 2003 fluttust að jafnaði fleiri konur til landsins en karlar. Þessi þróun snerist við á tímabilinu frá 2004–2008. Á þeim árum fluttust til landsins 4.215 fleiri karlar en konur. Árin 2009-2012 fluttust hins vegar 4.114 fleiri karlar en konur úr landi umfram aðflutta. Í fyrra bar svo við að 287 fleiri karlar en konur fluttust til landsins umfram brottflutta.

Innanlandsflutningum fjölgar um 2.232 milli ára
Fjöldi innanlandsflutninga náði hámarki á árinu 2007 en þá voru tilkynntir flutningar 58.186 einstaklinga. Eftir það fækkaði innanlandsflutningum jafnt og þétt og náðu þeir lágmarki sínu árið 2010 þegar 46.535 einstaklingar skiptu um lögheimili. Árið 2011 varð aftur á móti fjölgun í fyrsta sinn frá árinu 2007 en þá mældust innanlandsflutningar 49.398. Árið 2014 voru þeir 52.893 sem er fjölgun um 2.232 milli ára. Flestir þeirra voru flutningar innan sveitarfélags eða 33.222. Alls fluttu 10.722 einstaklingar milli sveitarfélaga innan sama landsvæðis árið 2014 en 8.949 flutti frá einu landsvæði til annars.

Straumurinn til höfuðborgarsvæðis
Þegar aðeins er horft til innanlandsflutninga lá straumurinn frá öllum landsvæðum nema Suðurnesjunum og Norðurlandi eystra til höfuðborgarsvæðisins á árinu 2014. Til höfuðborgarsvæðisins fluttu 357 umfram brottflutta frá landsvæðunum átta. Flutningsjöfnuður landshluta vegna innanlandsflutninga var aftur á móti óhagstæðastur á Norðurlandi vestra (-151), Austurlandi (-146) og Vestfjörðum (-103).

Árið 2014 nutu öll landsvæði góðs af millilandaflutningum enda flutningsjöfnuður þeirra allra jákvæður. Flestir þeirra 1.113 sem fluttust til Íslands umfram brottflutta enduðu á höfuðborgarsvæðinu (585).

Þegar litið er til bæði innanlands- og utanlandsflutninga voru Norðurland vestra (-135), Austurland (-107) og Vestfirðir (-26) þau landsvæðið sem koma út með neikvæðan flutningsjöfnuð árið 2014.

Búferlaflutningar eftir landsvæðum 2014
  Aðfluttir umfram brottflutta    
  Alls Innanlands Milli landa
Alls 1.113 1.113
Höfuðborgarsvæðið 942 357 585
Suðurnes 279 145 134
Vesturland 2 -69 71
Vestfirðir -26 -103 77
Norðurland vestra -135 -151 16
Norðurland eystra 14 1 13
Austurland -107 -146 39
Suðurland 144 -34 178

Aðferðir
Hagstofan metur búferlaflutninga á grundvelli upplýsinga um breytingar á lögheimili í íbúaskrá Þjóðskrár. Búferlaflutningar eru gerðir upp á grundvelli skráningardags í þjóðskrá en ekki eftir því hvenær flutningur fór fram. Rétt er að hafa í huga að nokkur töf getur orðið á því að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir í íbúaskrá og að sama skapi getur dregist að þeir einstaklingar sem flytjast af landi brott séu felldir úr íbúaskrá. Sé unnið við skráningu jafnt og þétt yfir árið hefur þetta þó aðeins smávægileg áhrif á heildartölurnar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.