FRÉTT LÍFSKJÖR 25. SEPTEMBER 2026

Eignir fjölskyldna samkvæmt skattframtölum einstaklinga námu að meðaltali 60,4 milljónum króna árið 2025 og jukust um 8,8% frá árinu 2024. Aukningin er 4,6% á föstu verðlagi ársins 2025 (miðað við ársmeðaltöl vísitölu neysluverðs). Er það mesta aukning á milli ára frá 2021 þegar verðlagsleiðrétt hækkun frá fyrra ári var 7,8%.

Eignir eru allar eignir fjölskyldu samkvæmt skattframtali, þar með talið fasteignir, ökutæki, innistæður í bönkum og verðbréf. Eignir voru að meðaltali hæstar í elsta aldurshópnum (67 ára og eldri) þar sem þær numu rétt tæplega 111 milljónum. Aukning á milli ára var hins vegar mest í yngstu aldurshópunum (yngri en 30 ára).

Fjölskylda er mynduð af samsköttuðum einstaklingum og börnum undir 16 ára aldri á þeirra framfæri. Flokkun fjölskyldu í aldurshópa miðast við elsta fjölskyldumeðlim.

Að meðaltali skulduðu fjölskyldur 14,7 milljónir króna árið 2025 sem er 3,5% aukning að nafnvirði frá árinu áður. Hlutfall heildarskulda af vergri landsframleiðslu lækkaði um 1,6 prósentustig frá fyrra ári, í 69,5%, og hefur ekki verið lægra síðan 2001.

Skuldir eru samanlagðar heildarskuldir fjölskyldu en til þeirra teljast allar skuldir að meðtöldum skuldum vegna fasteignakaupa (en ekki skuldir vegna kaupleiguíbúða). Skuldir alls ná til allra, líka þeirra sem skulda ekkert. Heildareignir fjölskyldna voru 286% af vergri landsframleiðslu ársins 2025.

Um gögnin
Hagstofan hefur uppfært ítarlegt talnaefni um skuldir og eignir fjölskyldna fyrir tímabilið 1990 til 2025, sundurliðað eftir fjölskyldugerð, aldri og búsetu. Talnaefnið byggir á skattframtölum einstaklinga, 16 ára og eldri, sem eru skattskyldir hér á landi og skilað hafa framtali til Skattsins. Undanskildir eru þeir sem eru með handreiknað framtal, með áætlaðar tekjur, létust á árinu eða eru ekki búsettir á Íslandi samkvæmt mati Hagstofunnar á íbúafjölda.

Af þessu leiðir að tölurnar þekja um 80% skattskyldra einstaklinga og um 90% af öllum tekjum sem eru í skattframtölum (forskráðum, handskráðum og áætluðum), tæplega 95% skulda og rétt rúmlega 90% allra eigna. Þessi hlutföll hafur verið nokkuð stöðug síðustu ár. Fjölskyldur eru flokkaðar sem einstaklingar, einstæð foreldri, hjón án barna og hjón með börn.

Réttindi og eignir hjá lífeyrissjóðum og vörsluaðilum lífeyrissparnaðar samkvæmt lögum númer 129/1997 eru ekki meðtaldar í eignum.

Gögnin eru samanburðarhæf á milli ára þar sem beitt er samræmdum aðferðum frá ári til árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.