FRÉTT LÍFSKJÖR 28. APRÍL 2014

Heimilum í leiguhúsnæði hefur fjölgað umtalsvert síðan 2007. Það ár voru 15,4% heimila í leiguhúsnæði en 24,9% árið 2013. Árið 2007 var hlutfall heimila í leiguhúsnæði á almennum markaði svipað og hlutfall heimila í leiguhúsnæði í gegnum hverskyns búsetuúrræði á borð við félagslegar leiguíbúðir sveitarfélaga og námsmannahúsnæði, eða 7,6% samanborið við 7,8%. Fjölgunin var hinsvegar meiri í fyrrnefnda hópnum og árið 2013 voru 14,2% heimila í leiguhúsnæði á almennum markaði en 10,7% í búsetuúrræði.

 

Leigjendum á almennum markaði hefur ekki aðeins fjölgað, heldur hefur samsetning hópsins breyst, bæði hvað varðar aldur, heimilisgerðir og tekjur. Eftir 2007 óx hlutfall fólks á aldrinum 25-34 ára á almennum leigumarkaði hraðar en í eldri aldurshópum, úr 8,6% í 23,7%. Á sama tíma hækkaði hlutfall leigjenda á almennum markaði í lægsta tekjubilinu hraðar en á hærri tekjubilum, úr 9,5% í 28,9%. Þá hækkaði hlutfallið á meðal heimila einhleypra með eitt eða fleiri börn úr 9,7% í 27,7%, sem er meiri aukning en mælist fyrir aðrar heimilisgerðir.

Félagsvísar: Leigjendur á almennum leigumarkaði - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.