FRÉTT LÍFSKJÖR 20. NÓVEMBER 2026

Hlutfall einstaklinga undir lágtekjumörkum var 8,5% árið 2026, eða um 34.000 einstaklingar. Þeir sem eru undir lágtekjumörkum búa á heimilum þar sem ráðstöfunartekjur (e. disposable income) heimilisins eru undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna í landinu að teknu tilliti til heimilisstærðar. Á árunum 2021–2026 var hlutfall einstaklinga undir lágtekjumörkum á bilinu 7,4% til 9,0%, lægst árið 2023 og hæst árið 2022. Breytingar á milli ára á tímabilinu eru allar innan skekkjumarka. Árið 2026 var lágtekjuhlutfall 9,8% á meðal karla og 7,2% á meðal kvenna. Tölurnar ná til einstaklinga á öllum aldri, einnig barna. Munur var á lágtekjuhlutfalli karla og kvenna árin 2025 og 2026 en ekki fyrir önnur ár á tímabilinu.

Lágtekjuhlutfall hærra meðal fólks í leiguhúsnæði
Öll árin 2021–2026 var lágtekjuhlutfall hærra á meðal einstaklinga í leiguhúsnæði en meðal einstaklinga í eigin húsnæði. Árið 2026 voru 23,2% einstaklinga í leiguhúsnæði undir lágtekjumörkum samanborið við 4,2% einstaklinga í eigin húsnæði.

Einstaklingar í leiguhúsnæði eru hlutfallslega færri í úrtakinu sem gerir það að verkum að meiri óvissa er í mati á lágtekjuhlutfalli þeirra en annarra. Öryggisbil lágtekjuhlutfalls þeirra er því breitt, eða 15,6–30,8% árið 2026. Einstaklingar í endurgjaldslausu húsnæði eru taldir með í heildarhlutfallinu en eru ekki sýndir sérstaklega þar sem þeir eru mjög fáir í úrtakinu.

Börn og einstaklingar með erlendan bakgrunn oftar á heimilum undir lágtekjumörkum
Árið 2026 bjuggu 13,1% barna á heimilum undir lágtekjumörkum samanborið við 8,5% landsmanna í heild. Hlutfall barna á heimilum undir lágtekjumörkum var hærra en meðal landsmanna í heild öll árin 2021–2026.

Meðal einstaklinga með erlendan bakgrunn var lágtekjuhlutfallið 16,7% árið 2026 samanborið við 5,5% meðal þeirra sem eru með innlendan bakgrunn. Munur var marktækur árin 2021 og 2024–2026. Fullorðnir einstakingar eru flokkaðir eftir fæðingarlandi og börn eftir bakgrunni foreldra.

Lágtekjuhlufall lágt í evrópskum samanburði
Árið 2025 var lágtekjuhlutfall á Íslandi 8,5%, það lægsta í Evrópu, en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 16,3%. Lágtekjuhlutfallið var næstlægst í Tékklandi, eða 9,6%, og hæst í Litháen, eða 22,6%. Á Norðurlöndunum var það næstlægst í Noregi, eða 11,3%, og hæst í Svíþjóð, eða 15,6%. Nýjustu tölur fyrir evrópskan samanburð eru fyrir árið 2025 en nýjustu íslensku tölurnar eru fyrir árið 2026.

Hlutfall barna sem búa á heimilum undir látekjumörkum er lágt á Íslandi í evrópskum samanburði. Árið 2025 var hlutfallið 12,7% á Íslandi en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 19,6%. Hlutfallið var lægst í Danmörku, eða 9,2%, og hæst á Spáni, eða 28,4%. Í Noregi var það 10,9%, í Finnlandi 12,3% og í Svíþjóð 19,9%.

Hugtakaskýringar
Lágtekjumörk eru fjárhæð sem samsvarar 60% af miðgildi ráðstöfunartekna á neyslueiningu í viðkomandi landi. Þeir sem eru undir lágtekjumörkum hafa lágar tekjur í samanburði við aðra, það er búa á heimilum þar sem ráðstöfunartekjur á neyslueiningu eru undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna á neyslueiningu. Þegar talað er um lágtekjuhlutfall er vísað til hlutfalls einstaklinga sem eru undir lágtekjumörkum.

Lágtekjuhlutfall byggist á ráðstöfunartekjum heimilis en ekki á tekjum hvers einstaklings. Allir heimilismenn eru þannig annaðhvort undir lágtekjumörkum eða yfir þeim. Karl og kona sem búa saman eru bæði undir mörkunum eða bæði yfir þeim, jafnvel þótt annað þeirra hafi mun hærri tekjur en hitt. Lágtekjuhlutfall eftir kyni endurspeglar því heimilin sem karlar og konur búa á en ekki eigin tekjur þeirra.

Ráðstöfunartekjur eru samanlagðar heildartekjur allra heimilismanna á mánuði að frádregnum skatti. Greiðslur úr félagslega kerfinu eru meðtaldar. Hagnaður af sölu hlutabréfa og verðbréfa telst ekki til ráðstöfunartekna samkvæmt skilgreiningu Evrópusambandsins og þar með í lífskjararannsókninni. Aðrar fjármagnstekjur, svo sem vaxtatekjur og arður af hlutabréfum, teljast hins vegar til ráðstöfunartekna.

Ráðstöfunartekjur á neyslueiningu eru ráðstöfunartekjur heimilis að teknu tilliti til heimilisstærðar. Heimilisstærð er mæld í neyslueiningum samkvæmt jafngildiskvarða OECD (e. modified OECD equivalence scale). Kvarðinn tekur tillit til þeirrar hagkvæmni sem fæst þegar fleiri en einn búa undir sama þaki og gerir auk þess ráð fyrir því að útgjöld vegna barna séu lægri en útgjöld vegna fullorðinna. Fyrsti fullorðni einstaklingurinn á heimilinu fær gildið 1,0, aðrir 14 ára og eldri fá gildið 0,5 hver og börn yngri en 14 ára fá gildið 0,3 hvert. Heimili tveggja fullorðinna og tveggja ungra barna fær þannig gildið 2,1 (1,0 + 0,5 + 0,3 + 0,3). Par með tvö ung börn sem hefur 1.000.000 krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði hefur 476.000 krónur í ráðstöfunartekjur á neyslueiningu (1.000.000 krónur / 2,1).

Um tölurnar
Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofunnar. Rannsóknin er hluti af EU-SILC, samræmdri lífskjararannsókn Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tilgangurinn er að afla og miðla greinargóðum og samanburðarhæfum upplýsingum um tekjur og lífskjör almennings.

Úrtak lífskjararannsóknarinnar er einfalt slembiúrtak einstaklinga, og þar með heimilið sem þeir tilheyra, sem dregið er úr mannfjöldagrunni Hagstofunnar 1. janúar ár hvert. Í úrtaksrammanum eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar, 16 ára og eldri, sem metnir eru í fastri búsetu á landinu. Sá sem lendir í úrtakinu veitir upplýsingar um sínar eigin aðstæður, aðstæður annarra heimilismanna og um heimilið. Upplýsingar um tekjur eru fengnar úr skattframtölum og öðrum stjórnsýslugögnum og miðast þær við árið á undan. Niðurstöður ársins 2026 byggjast þannig á tekjum ársins 2025.

Undanfarin ár hefur Hagstofan unnið að umbótum í vinnslu talna úr lífskjarannsókninni. Tölur áranna 2021-2023 hafa verið endurskoðaðar með nýjum vogum og endurbættri vinnslu tekna. Það leiðir til þess að brot er í tímaröðinni á milli áranna 2020 og 2021. Nánar er fjallað um endurskoðunina í Hagtíðindum, „Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021–2026“, sem komu út 20. nóvember 2026. Þar er meðal annars skýrt hvers vegna endurskoðað lágtekjuhlutfall áranna 2021–2023 víkur frá áður birtum tölum.

Við túlkun á niðurstöðum ber að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða og því er gert ráð fyrir óvissu. Með því að hafa öryggisbil til hliðsjónar er hægt að leggja mat á hversu nákvæmlega úrtaksgildið segir til um hið raunverulega gildi í þýðinu. Öryggisbilin má finna í samsvarandi töflum á vef Hagstofunnar. Þegar fjallað er um mun á milli mælinga þá er það til marks um tölfræðilega marktækan mun. Þegar munurinn er tölfræðilega ómarktækur er ekki fjallað um mun.

Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021-2026 - Hagtíðindi

Lýsigögn

Talnaefni
Fjárhagsstaða
Húsnæðismál
Efnislegur skortur

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281033 , netfang arndis.vilhjalmsdottir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.