Gini-stuðullinn var 23,6 árið 2026 samkvæmt niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofunnar. Stuðullinn er mælikvarði á tekjujöfnuð í samfélaginu og væri 0 ef allir einstaklingar hefðu jafnar tekjur en 100 ef einn einstaklingur hefði allar tekjurnar.
Á árunum 2021–2026 var Gini-stuðullinn á bilinu 22,2 til 23,6, lægstur árið 2023 og hæstur árið 2026. Breytingar milli samliggjandi ára voru innan skekkjumarka og á það einnig við um hækkunina úr 22,4 árið 2025 í 23,6 árið 2026.
Félagsleg aðstoð til heimila dregur úr ójöfnuði og er Gini-stuðullinn því hærri þegar hann er reiknaður án félagslegrar aðstoðar. Á árunum 2021–2026 var Gini-stuðullinn án félagslegrar aðstoðar lægstur árið 2023, eða 28,3, og hæstur árin 2021 og 2026, eða 30,4 og 30,1. Með félagslegri aðstoð er átt við greiðslur á borð við fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna, barnabætur, húsnæðisbætur, atvinnuleysisbætur og örorkubætur. Ellilífeyrir og eftirlifendabætur teljast ekki til félagslegrar aðstoðar.
Fimmtungastuðull
Annar mælikvarði á tekjujöfnuð í samfélaginu er fimmtungastuðull sem mælir hlutfallslegan tekjumun milli efsta og neðsta tekjufimmtungs. Fimmtungastuðullinn var 3,3 árið 2026. Það þýðir að samanlagðar ráðstöfunartekjur á neyslueiningu þeirra 20% einstaklinga sem höfðu hæstar tekjur voru 3,3 sinnum hærri en þeirra 20% sem höfðu lægstar tekjur. Á árunum 2021–2026 var fimmtungastuðullinn lægstur árið 2025, eða 3,0, og hæstur árið 2026, eða 3,3.
Tekjumunur á milli efsta og neðsta tekjufimmtungs er meiri þegar ekki er tekið tillit til félagslegrar aðstoðar. Fimmtungastuðull án félagslegrar aðstoðar var 5,5 árið 2026, töluvert hærri en þegar tekið er tillit til félagslegrar aðstoðar. Það gefur til kynna að aðstoðin dragi verulega úr tekjumun á milli þeirra sem tilheyra neðsta og efsta tekjufimmtungi.
Ójöfnuður tekna lítill í evrópskum samanburði
Á mælikvarða Gini-stuðulsins, var ójöfnuður á Íslandi lítill í evrópskum samanburði. Árið 2025 var Gini-stuðullinn á Íslandi 22,4, sá lægsti í Evrópu, en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 29,2. Gini-stuðullinn var næstlægstur í Slóvakíu, eða 23,0, og hæstur í Búlgaríu, eða 37,7. Á Norðurlöndunum var ójöfnuður næst minnstur í Noregi þar sem Gini-stuðullinn var 23,7, en stuðullinn var 27,1 í Finnlandi, 28,2 í Danmörku og 28,6 í Svíþjóð.
Árið 2025 var Gini-stuðullinn án félagslegrar aðstoðar 28,5 á Íslandi. Aðeins í Tékklandi, Slóvakíu og Slóveníu var stuðullinn lægri, eða á bilinu 27,3 til 28,4. Meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 34,1 og stuðullinn var hæstur í Búlgaríu, eða 41,1. Á hinum Norðurlöndunum var hann á bilinu 32,2 í Noregi til 35,4 í Danmörku.
Hugtakaskýringar
Gini-stuðull (e. Gini coefficient) er mælikvarði á ójöfnuð tekna. Gini-stuðullinn mælir í einni tölu milli 0 og 100 hvernig samanlagðar ráðstöfunartekjur á neyslueiningu allra einstaklinga í landinu dreifast. Hátt gildi táknar mikinn ójöfnuð.
Fimmtungastuðull (e. income quintile share ratio) er hlutfallið milli samanlagðra ráðstöfunartekna á neyslueiningu þeirra 20% einstaklinga sem hafa hæstar slíkar tekjur og samsvarandi tekna þeirra 20% sem hafa lægstar slíkar tekjur.
Ráðstöfunartekjur eru samanlagðar heildartekjur allra heimilismanna á mánuði að frádregnum skatti. Greiðslur úr félagslega kerfinu eru meðtaldar. Hagnaður af sölu hlutabréfa og verðbréfa telst ekki til ráðstöfunartekna samkvæmt skilgreiningu Evrópusambandsins og þar með í lífskjararannsókninni. Aðrar fjármagnstekjur, svo sem vaxtatekjur og arður af hlutabréfum, teljast hins vegar til ráðstöfunartekna.
Ráðstöfunartekjur á neyslueiningu eru ráðstöfunartekjur heimilis að teknu tilliti til heimilisstærðar. Heimilisstærð er mæld í neyslueiningum samkvæmt jafngildiskvarða OECD (e. modified OECD equivalence scale). Kvarðinn tekur tillit til þeirrar hagkvæmni sem fæst þegar fleiri en einn búa undir sama þaki og gerir auk þess ráð fyrir því að útgjöld vegna barna séu lægri en útgjöld vegna fullorðinna. Fyrsti fullorðni einstaklingurinn á heimilinu fær gildið 1,0, aðrir 14 ára og eldri fá gildið 0,5 hver og börn yngri en 14 ára fá gildið 0,3 hvert. Heimili tveggja fullorðinna og tveggja ungra barna fær þannig gildið 2,1 (1,0 + 0,5 + 0,3 + 0,3). Par með tvö ung börn sem hefur 1.000.000 krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði hefur 476.000 krónur í ráðstöfunartekjur á neyslueiningu (1.000.000 krónur / 2,1).
Um tölurnar
Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofunnar. Rannsóknin er hluti af EU-SILC, samræmdri lífskjararannsókn Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tilgangurinn er að afla og miðla greinargóðum og samanburðarhæfum upplýsingum um tekjur og lífskjör almennings.
Úrtak lífskjararannsóknarinnar er einfalt slembiúrtak einstaklinga, og þar með heimilið sem þeir tilheyra, sem dregið er úr mannfjöldagrunni Hagstofunnar 1. janúar ár hvert. Í úrtaksrammanum eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar, 16 ára og eldri, sem metnir eru í fastri búsetu á landinu. Sá sem lendir í úrtakinu veitir upplýsingar um sínar eigin aðstæður, aðstæður annarra heimilismanna og um heimilið. Upplýsingar um tekjur eru fengnar úr skattframtölum og öðrum stjórnsýslugögnum og miðast þær við árið á undan. Niðurstöður ársins 2026 byggjast þannig á tekjum ársins 2025.
Undanfarin ár hefur Hagstofan unnið að umbótum í vinnslu talna úr lífskjarannsókninni. Tölur áranna 2021-2023 hafa verið endurskoðaðar með nýjum vogum og endurbættri vinnslu tekna. Það leiðir til þess að brot er í tímaröðinni á milli áranna 2020 og 2021. Nánar er fjallað um endurskoðunina í Hagtíðindum, „Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021–2026“, sem komu út 20. nóvember 2026.
Við túlkun á niðurstöðum ber að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða og því er gert ráð fyrir óvissu. Með því að hafa öryggisbil til hliðsjónar er hægt að leggja mat á hversu nákvæmlega úrtaksgildið segir til um hið raunverulega gildi í þýðinu. Öryggisbilin má finna í samsvarandi töflum á vef Hagstofunnar. Þegar fjallað er um mun á milli mælinga þá er það til marks um tölfræðilega marktækan mun. Þegar munurinn er tölfræðilega ómarktækur er ekki fjallað um mun.
Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021-2026 - Hagtíðindi
Lýsigögn
Talnaefni