FRÉTT LAUN OG TEKJUR 16. MARS 2016

Regluleg laun voru að meðaltali 2,3% hærri á fjórða ársfjórðungi 2015 en á ársfjórðungnum á undan. Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2014 var 9,0% að meðaltali, hækkunin var 8,9% á almennum vinnumarkaði og 9,0% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 10,2% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 7,6%.

 

Laun verkafólks hækka mest
Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstétt á bilinu 1,1% til 3,1%. Laun sérmenntaðs starfsfólks hækkuðu mest en iðnaðarmanna minnst milli ársfjórðunga. Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2014 var mest hjá verkafólki eða um 11,0% en minnst hjá stjórnendum eða um 5,9%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 9,9%, sérmenntaðs starfsfólks um 9,7%, skrifstofufólks um 9,5% og iðnaðarmanna um 8,0%.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í fjármálaþjónustu eða um 3,9%. Þá hækkuðu laun á milli ársfjórðunga um 2,0% í samgöngum, 1,6% í verslun, 1,2% í iðnaði og 1,1% í byggingarstarfsemi. Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2014 var mest í samgöngum eða um 10,3 % en minnst í fjármálaþjónustu eða um 7,7%.

Kjarasamningar
Í vísitölu launa á fjórða ársfjórðungi 2015 gætir áhrifa kjarasamninga opinberra starfsmanna við viðsemjendur sína. Að auki gætir áhrifa endurskoðunar á starfsmatskerfi sveitarfélaga, í samræmi við bókun 2 í gildandi kjarasamningum, sem nær til aðildarfélaga BSRB og ASÍ. Í vísitölunni gætir einnig áhrifa kjarasamnings Samtaka atvinnulífsins við Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja.

Um vísitölu launa
Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en fyrir opinbera starfsmenn eru niðurstöður birtar eftir stjórnsýslustigi. Opinberir starfsmenn teljast þeir starfsmenn sem eru starfsmenn sveitarfélaga og þeir starfsmenn ríkis sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins. Aðrir tilheyra almennum vinnumarkaði.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.