FRÉTT LAUN OG TEKJUR 07. MARS 2014

Laun hækkuðu um 0,9% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 0,9% hærri á fjórða ársfjórðungi 2013 en á ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,0% að meðaltali, hækkunin var 6,1% á almennum vinnumarkaði og 5,5% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,1% en hjá starfsmönnum sveitarfélaga um 4,9%.

 


Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í byggingarstarfsemi eða um 1,4%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í samgöngum, 1,0% í verslun og í fjármálaþjónustu og 0,9% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í samgöngum eða um 7,3% en minnst í iðnaði eða um 5,6%. 

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,6% til 1,4%. Laun verkafólks hækkuðu mest en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 7,8% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna um 6,7%, sérfræðinga um 6,5%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 6,2%, verkafólks um 6,1% og iðnaðarmanna um 5,5%.

Um vísitölu launa
Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en fyrir opinbera starfsmenn eru niðurstöður birtar eftir stjórnsýslustigi. Opinberir starfsmenn teljast þeir starfsmenn sem eru starfsmenn sveitarfélaga og þeir starfsmenn ríkis sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins. Aðrir tilheyra almennum vinnumarkaði. 


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.