FRÉTT LAUN OG TEKJUR 06. SEPTEMBER 2013


Laun hækkuðu um 2,0% frá fyrri ársfjórðungi

Regluleg laun voru að meðaltali 2,0% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2013 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,9% að meðaltali, hækkunin var 6,1% á almennum vinnumarkaði og 5,0% hjá opinberum starfsmönnum. Á sama tímabili hækkuðu ríkisstarfsmenn um 5,1% en starfsmenn sveitarfélaga um 5,0%.

 


Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í samgöngum eða um 2,3%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 2,0% í fjármálaþjónustu, 1,7% í verslun, 1,4% í byggingarstarfsemi og 1,2% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu eða um 7,7% en minnst í iðnaði eða um 5,4%. 

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 1,1% til 2,4%. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest en laun stjórnenda og verkafólks hækkuðu minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 7,7% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun sérfræðinga um 7,2%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 7,0%, tækna um 6,1%, verkafólks um 5,9% og stjórnenda um 5,5%. 

Kjarasamningar
Áhrif  á vísitölu launa vegna ákvæða í kjarasamningum á fyrsta ársfjórðungi 2013 koma að fullu til framkvæmda í öðrum ársfjórðungi 2013.

Í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2011 var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 3,25% þann 1. febrúar 2013. Í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna var almenn hækkun launataxta um 3,25% í mars 2013 og í kjarasamningum milli Sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna var kveðið á um hækkanir á launatöflum frá 1. mars 2013.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.