FRÉTT LAUN OG TEKJUR 07. SEPTEMBER 2011

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. september 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Laun hækkuðu um 2,5% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 2,5% hærri á öðrum ársfjórðungi 2011 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,9% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 1,5% að meðaltali. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,8% að meðaltali, hækkunin var 7,1% á almennum vinnumarkaði og 3,0% hjá opinberum starfsmönnum.


Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa í samgöngum og flutningum 3,2% en á sama tíma hækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð  um 2,0%. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 9,8% en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 3,4%.

Þá hækkuðu laun þjónustufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 3,5% en laun stjórnenda hækkuðu að meðaltali um 2,4% á sama tímabili.  Laun sérfræðinga hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 8,6% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, um 5,8%.


Helstu kjarasamningar á tímabilinu
Í vísitölu launa á öðrum ársfjórðungi gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í nýgerðum kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði.
Í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 5. maí 2011 er kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júní.

Auk þess er kveðið á um sérstaka 50.000 króna eingreiðslu til útborgunar í maí 2011 og sérstakt 10.000 króna álag á orlofsuppbót í júní 2011.

Í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru í lok maí og byrjun júní er kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júní. Auk þess er kveðið á um sérstaka 50.000 króna eingreiðslu og sérstakt 10.000 króna álag á orlofsuppbót til útborgunar í júní 2011.

Í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru í lok maí og júní er kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júní. Auk þess er kveðið á um sérstaka 50.000 króna eingreiðslu til útborgunar í júní 2011.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.