Vísitala launa er 120,2 stig á öðrum ársfjórðungi 2007 og hækkaði um 1,4% frá fyrri ársfjórðungi. Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,5% á sama tímabili og vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn um 1,1%.
Árshækkun vísitölu launa var 10,6% á öðrum ársfjórðungi 2007, 11,7% á almennum vinnumarkaði og 8,1% hjá opinberum starfsmönnum.
Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir starfsstétt
Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest hjá sérfræðingum, 2,5% en minnst hjá iðnaðarmönnum, 0,7%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá öðrum ársfjórðungi 2006 eða um 13,2% en regluleg laun iðnaðamanna hækkuðu minnst, 9,8%.
Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein
Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) eða 3,0% en minnst var hækkunin í iðnaði (D), 0,6%. Frá öðrum ársfjórðungi 2006 hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) mest eða um 15,0% en minnst var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G), 10,4%.
Vísitala launa helstu launaþegahópa 2006-2007 | |||||||||
Meðaltal 2005 =100 | Alls | Starfsmenn á almennum vinnumarkaði | Opinberir starfsmenn | ||||||
Vísitala | Breyting frá fyrri ársfj.,% | Breyting frá fyrra ári, % | Vísitala | Breyting frá fyrri ársfj.,% | Breyting frá fyrra ári, % | Vísitala | Breyting frá fyrri ársfj., % | Breyting frá fyrra ári, % | |
2006 | |||||||||
2. ársfj. | 108,7 | 1,7 | 9,4 | 108,2 | 1,4 | 8,9 | 109,8 | 2,4 | 10,6 |
3. ársfj. | 112,0 | 3,0 | 11,0 | 112,1 | 3,6 | 11,4 | 111,6 | 1,7 | 10,1 |
4. ársfj. | 114,0 | 1,8 | 11,2 | 114,3 | 1,9 | 11,5 | 113,2 | 1,4 | 10,3 |
Meðaltal | 110,3 | . | 10,3 | 110,3 | . | 10,3 | 110,4 | . | 10,4 |
2007 | |||||||||
1. ársfj. | 118,6 | 4,1 | 11,0 | 119,1 | 4,2 | 11,7 | 117,4 | 3,7 | 9,5 |
2. ársfj. | 120,2 | 1,4 | 10,6 | 120,9 | 1,5 | 11,7 | 118,6 | 1,1 | 8,1 |
Talnaefni