FRÉTT LAUN OG TEKJUR 08. JÚNÍ 2012

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 14. 12. 2012 9:00 og aftur 2. 9. 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu.

Laun hækkuðu um 2,0% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 2,0% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2012 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 10,8% að meðaltali, hækkunin var 11,1% á almennum vinnumarkaði og 10,3% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 4,3%. Á sama tímabili hækkuðu laun um 1,4% í atvinnugreinunum byggingarstarfsemi og verslun. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 14,0% en minnst í byggingarstarfsemi um 8,3%.

Þá hækkuðu laun sérfræðinga mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 3,1% en laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu að meðaltali um 1,2% á sama tímabili. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 12,3% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, um 9,2%.

Kjarasamningar á tímabilinu
Í vísitölu launa á fyrsta ársfjórðungi 2012 gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í kjarasamningum sem undirritaðir voru á árinu 2011.  Í kjarasamningi á milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins var kveðið á um hækkun á kjarasamningsbundnum kauptöxtum um 11.000  krónur á mánuði og almenna hækkun launataxta um 3,5% þann 1. febrúar 2012.  Sambærilegir samningar voru gerðir milli fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna og sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna, en í þeim samningum kom almenn launahækkun um 3,5% til framkvæmda 1. mars 2012.

Í samningunum árið 2011 var einnig kveðið á um 50.000 króna eingreiðslu sem kom til hækkunar á vísitölu launa á öðrum  ársfjórðungi 2011.  Frá mars 2012 gætir ekki lengur áhrifa þessarar eingreiðslu í vísitölu launa.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.