Laun hækkuðu um 0,5% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 0,5% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2011 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,6% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,2% að meðaltali. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 4,5% að meðaltali; hækkunin var 5,6% á almennum vinnumarkaði og 1,9% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu mest í fjármálaþjónustu
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 1,5% en á sama tíma hækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 0,3%. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (8,5%) en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (2,5%).
Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun sérfræðinga mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 1,5% en laun iðnaðarmanna og þjónustufólks hækkuðu að meðaltali um 0,1% á sama tímabili. Laun sérfræðinga hækkuðu jafnframt mest frá fyrra ári eða um 7,6% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, um 4,2%.
| Breytingar vísitölu launa helstu launaþegahópa 2009-2011 | ||||||
| Alls | Starfsmenn á almennum vinnumarkaði | Opinberir starfsmenn | ||||
| Breyting | Breyting | Breyting | Breyting | Breyting | Breyting | |
| frá fyrri | frá fyrra | frá fyrri | frá fyrra | frá fyrri | frá fyrra | |
| ársfj., % | ári, % | ársfj., % | ári, % | ársfj., % | ári, % | |
| 2009 | ||||||
| 1. ársfj. | 0,8 | 6,2 | 0,3 | 4,1 | 1,8 | 11,3 | 
| 2. ársfj. | 0,2 | 3,6 | 0,2 | 1,2 | 0 | 9,5 | 
| 3. ársfj. | 0,7 | 2,1 | 0,8 | 0,8 | 0,4 | 4,9 | 
| 4. ársfj. | 1,6 | 3,2 | 1,9 | 3,4 | 0,8 | 3 | 
| Meðaltal | . | 3,8 | . | 2,4 | . | 7,1 | 
| 2010 | ||||||
| 1. ársfj. | 1,0 | 3,5 | 1,3 | 4,4 | 0,3 | 1,4 | 
| 2. ársfj. | 1,2 | 4,6 | 1,5 | 5,7 | 0,4 | 1,9 | 
| 3. ársfj. | 2,0 | 5,9 | 2,6 | 7,6 | 0,7 | 2,2 | 
| 4. ársfj. | 0,7 | 5,0 | 0,8 | 6,3 | 0,5 | 1,9 | 
| Meðaltal | . | 4,7 | . | 6,0 | . | 1,9 | 
| 2011 | ||||||
| 1. ársfj. | 0,5 | 4,5 | 0,6 | 5,6 | 0,2 | 1,9 | 
Talnaefni