FRÉTT LAUN OG TEKJUR 07. JÚNÍ 2010


Laun hækkuðu um 1,0% frá fyrri ársfjórðungi
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,0% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,3% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 0,3%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun um 3,5%, þar af 4,4% á almennum vinnumarkaði og 1,4% hjá opinberum starfsmönnum.

 
Laun þjónustu-, sölu og afgreiðslufólks hækkuðu mest frá fyrri ársfjórðungi
Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu regluleg laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 1,6% en laun iðnaðarmanna hækkuðu  minnst eða um 1,0%.   Árshækkun reglulegra launa frá 1. ársfjórðungi 2010 var á bilinu 2,9% til 6,2%, mest var hækkunin hjá þjónustu-, sölu og afgreiðslufólki en minnst hjá stjórnendum.

Ef horft er til atvinnugreina þá mældist  hækkun launa í samgöngum og flutningum mest eða um 1,7% frá fyrri ársfjórðungi. Á sama tímabili hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum um 1,1%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í samgöngum og flutningum eða um 6,7 % meðan  laun í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð hækkuðu minnst eða um 1,4%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.